Skinfaxi - 01.06.1978, Blaðsíða 10
F ramkvæmdastj óranám-
skeið á Laugarvatni
Héraðsskólinn að Laugarvatni þar sem námskeiðið var
til húsa.
Helgina 9.—11. júní sl. komu fram-
kvæmdastjórar ungmennafélaganna svo og
formenn þeirra sambandsaðila, sem engan
frkvstj. hafa, saman á Laugarvatni til
skrafs og ráðgerða.
Námskeið, sem þessi, eru ekki ný af
nálinni, þrjú slík hafa verið haldin áður,
1974 í Skálholti, 1975 að Leirárskóla Borg-
arfirði (nú Heiðarskóli), og 1976 að Stóru-
Tjarnarskóla S.-Þing. í fyrra féll þetta nám-
skeið niður, en það var samróma álit þeirra
sem sóttu námskeiðið á Laugarvatni, að
það hefði verið mjög bagalegt að eitt ár
skyldi falla úr.
Þátttakendur á námskeiðinu voru frá
átta héraðssamböndum, þeir:
Páll Ólafsson, framkvstj. UMSK.
Ingim. Ingim.son þjálfari UMSB.
Flemming Jessen, form. frjálsiþr.ráðs
UMSB.
Jón Guðjónsson form. HVÍ.
Matthías Lýðsson form. HSS.
Guðm. Gunnarsson framkvstj. UMSS.
Vilhjálmur Björnsson varaform. UMSE.
Gunnlaugur Árnason framkv.stj. HSÞ.
Sigurjón Bjarnason framkvstj. UÍA.
Auk þess sat Jóhanna Einarsdóttir, sem
verður þjálfari hjá USVH i sumar, fyrri
dags námskeiðsins, en Jóhanna útskrifas)
úr íþróttakennaraskólanum í ár.
Aðrir þátttakendur voru:
Sigurður Geirdal, framkvstj. UMFÍ.
Pétur Eysteinsson fyrrv. framkvstj. USAH.
Gunnar Kristjánsson ritstj. Skinfaxa.
Hafsteinn Þorvaldsson form. UMFÍ.
Guðm. Jónsson framkvstj. landsmóts-
nefndar.
Þá ávarpaði Árni Guðmundsson skóla-
stj. Í.K.Í. þátttakendur á laugardeginum,
en þátttakendur nutu fyrirgreiðslu Í.K.Í.
varðandi afnot af íþróttamannvirkjum á
staðnum, sem komu í góðar þarfir þegar
standa þurfti upp frá umræðunum.
Fyrirgreiðslu í mat og húsnæði annaðist
Axel Jónsson bryti á Laugarvagni.
Námskeiðið var haldið af UMFÍ í sam-
vinnu við framkvæmdastjórafélagið
(FFU).
A leiðinni upp að Laugarvatni síðdegis á
föstudag var komið við á Selfossi þar sem
landsmótsaðstaðan var skoðuð, en segja
má að meginuppistaða þessa námskeiðs
hafi verið undirbúningur væntanlegs lands-
móts ásamt öllum þeim málum sem varða
störf sambandanna og UMFÍ. Var því
10
SKINFAXI