Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1978, Blaðsíða 28

Skinfaxi - 01.06.1978, Blaðsíða 28
Enn bólar ekki á verðlaunaskjöldum frá Frjálsíþróttasambandi íslands vegna af- rekskeppni unglinga 1977. Veldur þessu sein afgreiðsla gefanda verðlaunanna. Eftirtalin félög og sambönd eiga flesta verðlaunahafa í þessari keppni: verðlaunahafar. Ármann Reykjavík 46 F.H. Hafnarfirði 37 U.Í.A. 33 Ungmennasamb. Borgarfj. 31 Leiknir Reykjavík 25 Ársrit U.Í.A. 1977 hefur nú væntanlega verið borið inn á hvert heimili á félags- svæðum ungmennafélaganna á Austur- landi. Flytur það margvíslegan fróðleik um íþrótta- og ungmennafélagsstarfið á liðnu ári. Ef einhverjir kannast ekki við að hafa fengið ritið, þá vinsamlega snúi þeir sér hið snarasta til viðkomandi ungmenna- eða iþróttafélags. Unnið er að því að koma út einu gönguleiðakorti fyrir sumarið. Á því korti verða gönguleiðir í nágrenni Fáskrúðs- fjarðar. Fær sambandið góða aðstoð Fáskrúðsfirðinga við að velja leiðir á kortið og semja leiðarlýsingar. Ungmennafélagið Fram í Hjaltastaðar- þinghá hefur nú sótt um inngöngu í U.Í.A. Félagið var endurreist á síðasta ári eftir u.þ.b. 10 ára svefn. Áður hafði Fram starfað vel innan U.I.A., en félagið á sér langa og merkilega sögu að baki. Formaður Umf. Fram er Arnþór Jónsson í Grænuhlíð. Eftir að Innganga Umf. Fram hefur verið samþykkt verða aðildarfélög U.Í.A. orðin 22 að tölu. Félagsmálaleiöbeinendur þinga á Laugarvatni Mál til ihugunar. Frá vinstri, Arnaldur, Niels, Ingimundur og Diörik. Svo sem kunnugt er, hefur Ungmenna- félag íslands beitt sér mjög fyrir félagsmála- fræðslu, á siðari árum í samstarfi við Æskulýðsráð ríkisins. Á grundvelli þess samstarfs o. fl. aðila gaf ÆRR árið 1970 út Félagsmálamöppu I, námsefni það sem notað hefur verið á félagsmálanámskeiðum síðan. Nú er unnið að gerð framhaldsnámsefnis og skipan námsefnisins. 1 tengslum við það starf efndi ÆRR til námskeiðs að Laugar- vatni 7.—9. apríl sl. með þeim félagsmála- leiðbeinendum sem mesta kennslureynslu hafa. Námskeiðið setti Hafsteinn Þorvaldsson, form. UMFÍ og ÆRR. Forstöðumenn námskeiðsins voru Reynir G. Karlsson, æskulýðsfulltr. ríkisins, Guðmundur Guðmundsson, félagsmálakennari í Bifröst, og Ólafur Oddsson, skólastjóri Félagsmála- skólaUMFÍ. Helstu efnisþættir námskeiðsins voru þessir: 15 manns tóku þátt í námskeiðinu. Þetta var starfssamur og samvirkur hópur og voru þátttakendur sammála um að nám- skeiðið hefði verið árangursríkt. Það var einnig samdóma álit þátttakenda, að ljúka þyrfti samantekt og ritun veigamestu kennsluhefta Félagsmálamöppu II fyrir haustið og þá burfi ÆRR að halda nám- skeið fyrir leiðbeinendur II. stigs. 28 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.