Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1978, Blaðsíða 15

Skinfaxi - 01.06.1978, Blaðsíða 15
Skógarvarðarbústaðurinn fyrrverandi umlukinn trjám. um er lítið hús í eigu UMFÍ. Hús þetta reisti Þórður Pálsson sem var skógarvörður í Þrastarskógi á sínum tíma, það er ekki stórt en getur þó með góðu móti rúmað nokkurn hóp ef svo slæst. Hvað væri hægt að gera 1 Þrastaskógi? Það þykir eflaust goðgá að setja frani- hugmyndir um framkvæmdir án þess að fjármagn sé tryggt og að vissu leyti er það svo en ýmislegt er þess þó valdandi að ekki er um jafn mikla fjarstæðu að ræða sem oft fyrr. Skilningur stjórnvalda og ráðamanna yfirleitt hefur aukist verulega nú síðustu árin á gildi þeirrar starfsemi sem rekin er af hinum frjálsu félagasamtökum. Fjárstyrkir hafa því vaxið verulega nú síðustu árin og allt útlit fyrir að um enn frekari aukningu verði að ræða á næstu árum. í öðru lagi hefur ungmennafélagshreyfingin sýnt sam- takamátt sinn með þætti i fjármögnun húsakaupa UMFÍ. Þrastaskógur ætti ekki síður að geta komið hreyfingunni í heild til góða. Hver eru þá brýnustu verkefnin? Vinnuskóli var starfræktur i Þrastaskógi sumarió 1973. Hór er verið að lagfæra veginn inn i skóginn. í fyrsta lagi verður að ganga þannig frá girðingum að skepnur komist ekki inn í skóginn, því öllu meiri skaðvaldar trjá- gróðurs eru vandfundnir. Koma þarf upp hreinlætis, snyrti- og búningsaðstöðu við íþróttavöllinn. Þar sem ekki verður hjá því komist að all nokkur umgangur fólks sé í skóginum er brýnt að upp verði komið ílátum undir úrgang og rusl sem losuð verði reglulega og ekki skaðaði að setja upp skilti með varnaðar- orðum um góða umgengni. Þá væri ekki úr vegi að merkja samtökunum þessa eign sína á viðeigandi hátt. Það sem hér hefur verið upp talið að framan eru nánast smámunir sem ekki geta kostað mikla fjármuni. Skógur sem Þrastaskógur þarfnast mikillar umhirðu og hreinsunar. Árið 1973 starfrækti UMFÍ í samvinnu við UMSK vinnuskóla fyrir unglinga í Þrastaskógi. Tilraun þessi þótti gefa góða raun þrátt fyrir að slæm aðstaða hefði háð henni verulega. Ég teldi verulegt SKINFAXI 15

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.