Skinfaxi - 01.06.1978, Síða 6
Á þessu plani við barnaskólann verður háð keppni i
handbolta kvenna. Álman til hægri er gamla íþrótta-
húsið á Selfossi.
Horft frá iþróttavellinum til
gagnfræðaskólans og hins
nýja iþróttahúss.
Kálfarnir við barnaskólann verða notaðir undir
þjónustumiðstöð.
staðnum vikjum við að matnum en það
mun vera algengast hjá stærstu sam-
böndunum að hafa með sér mötuneyti, en
fyrir þá sem ekki búa við slíkan lúxus og
hafa ekki haft með sér nóg nesti verður
starfrækt mötuneyti í Gagnfræðaskólan-
um.
Landbúnadarsýningin
leggur til aðstöðu
Allmiklar framkvæmdir verða vegna
landbúnaðarsýningar sem verður á Selfossi
3 vikum eftir landsmót. Við inngang
íþróttavallarins var verið að reisa hesthús
og fjárhús sem landsmótanefnd kemur til
að nýta sem áhalda og geymsluhúsnæði.
Hvað verður
auk íþrótta
á landsmótinu?
Áður hefur verið minnst á dansleiki,
kvöldvökur og fjölskylduskemmtun en auk
þess verða ýmsar sýningar um miðjan
6
daginn svo sem íþróttafrímerkjasýning í
Safnahúsinu, Flugklúbbur Selfoss verður
með flugsýningu og fallhlífastökk, hesta-
menn á Selfossi munu einnig verða með
prógramm á sínu svæði við Austurveg.
Aðrar sýningar sem tengdar eru beint við
landsmótadagskrána eru t.d. íþróttasýning
200 ungmenna af sambandssvæði HSK,
Þjóðdansaflokkur einnig skipaður félögum
HSK mun sýna þjóðdansa. Þá mun
danskur 45 nianna hópur, fimleika og
þjóðdansara, sýna listir sínar.
Boltaunnendur munu
hafa í nógu
að snúast.
Þar sem undankeppni í knattspyrnu og
körfubolta lauk ekki á tilsettum tíma
verður öllum þeim liðum stefnt á lands-
mótið en það eru 6 knattspyrnulið frá jafn-
mörgum aðildarsamböndum eða frá HSH,
UMSK, HSK, HSÞ, UMFK og UÍA.
í körfuknattleik keppa lið frá UÍA, HSK,
UMSB, UMSS, HSH, UMFN, UMSK og
SKINFAXI
UMFG. I blaki lið frá HSÞ, UÍA, UMSE,
HSK, og UMSK Þá munu fjögur lið keppa
til úrslita í handknattleik kvenna en það
eru lið frá HSÞ, UMFN, UMSK og
UMFG. Undankeppni í handknattleik
kvenna lauk á sl. hausti og urðu endalokin
þau að UÍA hafnaði í fimmta sæti en
UMFK í sjötta, keppnin um fjögur fyrstu
sætin fer síðan fram á landsmótinu. Um
þátttöku í borðtennis, sem nú er í fyrsta
sinn keppnisíþrótt á landsmóti þannig að til
stiga komi, er ekki vitað þegar þetta er
skrifað en líkur eru á að 4—5 sambönd
verði nieð lið í þeirri keppni.
Nýjar greinar
frjálsra íþrótta
Enn bætast við nokkrar greinar frjálsra
íþrótta sem ekki hefur áður verið keppt í á
landsmótum en það eru 800 m hlaup hjá
körlum og 1500 ni hjá konum.
SKINFAXI
Starfsíþróttir
færri en síöast
Rík tilhneiging hefur verið til þess að
fækka þeim greinum starfsíþrótta sem
keppt er í á landsmótuni og ástæðan vafa-
laust sú að þær eru ekki iðkaðar almennt
rneðal ungmennafélaga. Frá síðasta lands-
móti hafa verið felldar niður greinar, eins
og vélsaumur, pönnukökubakstur, gróður-
setning og nautgripadómar.
Að þessu sinni verður keppt í 6 greinum
starfsíþrótta og ein þeirra — STARFS-
HLAUP — ný grein á landsmóti. Þessar
greinar eru auk þess hestadómar, dráttar-
vélaakstur, jurtagreining, lagt á borð og
línubeiting. Starfsíþróttir hafa jafnan verið
vinsælar meðal áhorfenda og búast má við
að hin nýja grein veki forvitni. Um hana er
það eitt vitað að hún fer fram á íþrótta-
vellinum og hlaupið sjálft verður einn
hringur eða 400 m. En eitthvað verða þeir
sem hlaupa að hafa fyrir stafni svo að
greinin beri nafn með rentu. Það sem til