Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.06.1978, Side 9

Skinfaxi - 01.06.1978, Side 9
Skreyttur hér voru brúarsporður Ölfusárbrúr, að verki ungmenni á Selfossi. Hver verður sigurvegarinn? Að lokum báðum við Guðmund að spá fyrir um úrslit í heildarstigakeppni mótsins. Guðmundur kvaðst búast við harðri keppni um fyrsta sætið milli UMSK og HSK en sagðist þó vera viss um að HSK hefði betur í þetta sinn. En UMSK sigraði í heildarstigakeppninni á landsmótinu á Akranesi. Hann taldi nokkuð öruggt að HSÞ yrði í þriðja sæti þótt búast mætti við því að UMSB veitti þeim nokkra keppni. g.k. Illllllllllllllllllllllll Sendið blaðinu efni Skinfaxi vill hvetja lesendur sína til að senda sér efni. Það sem til greina kemur eru fréttir úr starfi ungmennafélaga, frásögur, ferðasögur, smásögur, sem og vísur og kvæði. Þá væri ekki úr vegi að lesendur sendu Skinfaxa sérstæðar mannlýsingar o. fl. í þeim dúr. Hugleiðingar hvers konar um menn og málefni væru einnig vel þegnar. En umfram allt lúrið ekki á neinu því sem þið teljið eiga erindi í málgagn samtakanna. SKINFAXI Tókið þið eftir því? Að síðasta tbl. Skinfaxa væri á einhvern hátt frábrugðið þvi fyrra? Hafið þið ekki gert það er rétt að upplýsa að Skinfaxi var þá offsetprentaður í fyrsta sinn. Ætla má að hann verði prentaður þannig í fram- tíðinni. Það er Prentval Súðavogi 7, sem sér um prentunina. Hér er um nokkur tíma- mót að ræða því lengi hefur verið hamrað á því að slík breyting á prentunarmáta færi fram. Fullvíst má telja að offset-prentunin bjóði upp á aukna möguleika og að myndir verði að miklum mun skýrari, en það hefur löngum verið veikari hlið Skinfaxa að fá nógu gott myndefni. Það er því full ástæða til þess að fagna þessum tímamótum og láta í ljósi þá von að þau verði blaðinu til framdráttar. 9

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.