Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1978, Page 14

Skinfaxi - 01.06.1978, Page 14
Þrastalundur, veitingaskáli U M FÍ, i baksýn er Ingólfsfjall. til veitingahalds yfir sumarmánuðina. Skálinn er orðinn vinsæll áningarstaður er veitir prýðisgóða þjónustu þótt smæð hans sé farin að há honum nokkuð. Útiveitinga- pallur sem byggður var framan við skálann fyrir nokkrum árum gefur skálanum skemmtilegan svip og aukna möguleika, ekki síst þar sem veðursæld er viðbrugðið á þessum stað. Og menningin lætur sig ekki vanta þarna austur við Sog frekar en annars staðar. Málverkasýningar eru alltaf öðru hvoru í veitingaskálanum. Skógurinn sjálfur. Þegar komið er inn fyrir hliðið að baki skálans tekur skógurinn við. Sambland af upprunalegu kjarri og gróðursettum trjá- við, en eitt helsta baráttumálið fyrstu ára- tugin var gróðursetning og verulegt starf unnið á því sviði. Var það m.a. hugmyndin um tíma að héraðssamböndin ættu hvert sinn gróðurreit i Þrastarskógi og urðu nokkur sambönd til þess að fara í gróður- setningarferðir í skóginn á þessum tíma. Um miðbik skógarins, sem er allur á lengdina, er grasvöllur 60 x 110 m. Endan- legar var gerð þessa vallar lokið 1970 er þökur voru settar á hann. Hafði hann þá verið alllengi í byggingu við erfið skilyrði og tækjaskort. Völlurinn er upplagður æfingavöllur en þarfnast þó meiri umhirðu til þess að vel megi vera. Ofan við völlinn eru grasbekkir fyrir áhorfendur en upp af þeim er minnisvarði um Aðalstein Sig- mundsson fyrrum ritstjóra Skinfaxa. En hann var einn þeirra manna sem látið hefur sig varða málefni Þrastaskógar. Niður með skóginum rennur Sogið undir háu Ingólfsfjalli en Ingólfsfjallið á sinn þátt í því hve skjólsælt er I skóginum. Innan við skóginn er síðan Álftavatn sem innri mörk eignarinnar. í skóginum skammt frá vellin- Tekið til hendinni á grasvellinum. Upp i brekkunni eru áhnrfcndapallarnir og fyrir ofan þá minnisvarðinn um Aðalstein Sigmundsson. 14 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.