Skinfaxi - 01.06.1978, Page 17
var síðan flutt með viðeigandi tilfæringum
í lok apríl og sett niður skammt fyrir innan
hliðið í Þrastarskógi þar sem það fer vel við
umhverfi sitt.
Sumarhús UMSK komið í Þrastaskúg.
Ef til vill verður þessi flutningur fyrsta
skrefið í þá átt að öll aðildarsamb. og
félög innan UMFI eignist sitt sumarhús í
Þrastaskógi, hvort sem þau flytja þau
tilbúin eða smíða á staðnum. Vel mætti
hugsa sér að hægt væri að komast að hag-
stæðum samningum við húsasmiðjur i
þessu sambandi.
Eitt er þó áríðandi áður en lengra er
haldið, en það er að svæðið verði skipulagt
með tilliti til frekari uppbyggingar og
aukinnarstarfsemi.
Norræna
ungmennavikan
1978
Að þessu sinni verður Norræna ung-
mennavikan haldin i Svíþjóð, nánar tiltekið
í Osby á norður Skáni. Skán (Skane) er
syðsta héraðið í Svíþjóð er var fyrr á öldum
undir yfirráðum Danakonungs, en losnaði
undan þeim yfirráðum 1658.
Ungmennavikan verður haldin dagana
23.-29. júlí. Eins og á fyrri ungmenna-
vikum verður dagskrán fjölbreytt og miðuð
við það að ungmennin hafi gagn sem
gaman af dvöl sinni. Á síðasta ári var ung-
mennavikan haldin í Danmörku og fór þá
19 manna hópur frá íslandi til dvalar á
henni. Hvert Norðurlandanna hefur rétt á
því að senda 20 ungmenni á ungmenna-
vikuna hverju sinni. Æskilegur aldur þátt-
takenda er 17—30 ár.
Þeim ungmennum sem hug hefðu á að
sækja Norrænu ungmennavikuna er bent á
að hafa samband við skrifstofu UMFÍ eða
formenn héraðssambanda og aðildarfélaga,
sem veita nánari upplýsingar.
SKINFAXI
17