Skinfaxi - 01.06.1978, Qupperneq 18
Landsmótsspá Skinfaxa í
frjálsum íþróttum
Skinfaxi hefur fengið tvo aðila til að spá
um úrslit í einstökum greinum frjálsra
íþrótta á landsmótinu á Selfossi i sumar.
Þessar spár birtast hér en höfundar þeirra
óska þess að nöfnum þeirra verði haldið
leyndum.
Að loknu landsmóti verður gaman að sjá
hversu vel þessar spár standast en hér koma
þá spárnar fyrir þrjá fyrstu í hverri grein.
Taka verður tillit til þess að skráning i
greinar á Iandsmóti hefur ekki farið fram
þegar þessar spár eru gerðar og því einungis
byggt á líkum þess að þessir aðilar verði
meðal keppenda á landsmóti.
KONUR:
100 m
Kristínu Jónsdóttur UMSK, spái ég öruggum sigri.
Reynsla hennar og keppnisharka svo og góður undir-
búningur þjálfunarlega séð leiðir hana til sigurs.
Oddný Árnadóttir UNÞ og Hólmfriður Erlingsdóttir
keppa um annað sætið.
100 m hlaup.
1. Bergþóra Benónýsdóttir, HSÞ.
2. Oddný Árnadóttir, UNÞ.
3. Hólmfríður Erlingsdóttir, UMSE.
400 m
Er mjög opin grein. Oddný Árnadóttir, Aðalbjörg
Hafsteinsdóttir, Halldóra ÚÍA og Svava Gröndfeldt
UMSB eru allar líklegar í toppbaráttunni. Einnig
Kristín Jónsdóttir hlaupi hún.
400 m hlaup.
1. Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, IISK.
2. Oddný Árnadóttir, UNÞ.
3. Halldóra Jónsdóttir, UÍA.
800 m
Aðalbjörg Hafsteinsdóttir HSK er sigurstranglegust.
Thelma Björnsdóttir verður í öðru sæti og liklcga
Svava Grönfeldt UMSB. í þriðja sæti.
800 m hlaup.
1. Aöalbjörg Hafsteinsdóttir. HSK.
2. Thelma Björnsdóttir, UMSK.
3. Sigurbjörg Karlsdóttir, UMSE.
1500 m
Keppnin mun standa milli Aðalbjargar og Thelmu en
þær eiga mjög líka tinia á vegalengdinni. Svava
Grönfeldt verður þriðja, hlaupi hún.
1500 m lilaup.
1. Aðalbjörg Hafsteinsdótlir, HSK.
2. Thelma Björnsdóttir, UMSK.
3. Sigurbjörg Karlsdóttir, UMSE.
lOOmgrind
Þegar þetta er skrifað er engin grindahlaupari sem
hægt er að kalla þvi nafni frani kominn, sem líklegur
sigurvegari. María Guðnadóttir HSH, Laufey Skúla-
dóttir, HSÞ, Halldóra UÍA, írsi Grönfeldt UMSB,
Oddný Árnadóttir, UNÞ, Kristín Björnsdóttir gætu
allar hlaupið á 17—18 sekúndunt eins og er, kannske
nægir það til sigurs.
100 m grindhhiup.
1. Laufey Skúladóttir, HSÞ.
2. Kristín Björnsdóttir, UMSK.
3. María Guðnadóttir, HSH.
4X 100 m.
HSÞ, UMSK, UMSB, HSK. UMSK sigrar í
boðhlaupinu ogannaðsætið hreppa Þringeyingar, um
þriðja sætið keppa HSK, UMSBog UMSE.
4x 100 m boðhlaup
1. Sveit HSÞ.
2. Sveit UMSK.
3. UMSE.
18
SKINFAXI