Skinfaxi - 01.08.1979, Blaðsíða 7
lauginni hefur hækkað síðan í gær. Við æfðum
spjótkast og kringlukast i morgun. Við borðuðum
og hvíldum okkur til klukkan 14. Við fórum síðan í
sund, stukkum á trambólíni og þar sýndi Hilmar
heljarstökk, svo fórum við í kaffi. Þar átum við
okkur pakksadda af skúffuköku. Engin gönguferð
var farin í dag, en í staðinn fengum við að sjá
fræðslumynd um Biafra. Eftir kvöldmat var spilað
bingó og var það rosaspennandi og við vonum að við
fáum að spila bingó aftur áður en námskeiðinu
lýkur.
Samið af: Davíð Steinssyni og Trausta Sigurgeirs-
syni.
Fimmtudagur 28. júní.
Við vorum vaktar kl. 7.45 þegar kallað var góðan
daginn. Klæddum okkur og tókum til i herberginu.
Fórum út í matsal u.þ.b. kl. 8.30. Borðuðum okkur
pakksaddar. Síðan fórum við út í leikfimisal, þar
fengum við að æfa okkur á trambólíni og eftir það
fórum við í boltaleikinn skotmann. Svo var þramm-
að af stað í sundlaugina litlu. Kl. 12 var matur og
hvíld. Og svo kl. 14 var farið í mjög spennandi fót-
bolta. Þá var hárið rétt að þorna og þá þurftum við
að fara aftur í sund og leikfimi með rennandi blautt
hárið sem bleytti stuttermaskyrtuna. Eftir það
fórum við í lcaffi að þemba okkur út af alls kyns
góðgæti. Svo eftir það fórum við í mjög skemmti-
lega gönguferð og leiki. Við tíndum marga steina og
skeljar til þess að skreyta herbergið. Kvöldmatur var
snæddur kl. 16.30, við fengum soðna ýsu, kartöflur
og flot. Kvöldvakan var mjög skemmtileg. Var bæði
dansað, spilað og lesið. Eftir það var gengið í hátt-
inn. Þá mundi Friðgerður að við áttum að skrifa
dagbók, settumst við þá niður og skrifuðum á þessa
leið.
Samið af: Ingibjörgu Gunnlaugsdóttur og Friðgerði
Ómarsdóttur.
Pfá fyrsta námskeiðinu 8—10 ára. Peyjarnir tilbúnir fyrir langstökkið. Vfkingur Kristjánsson frá Isafirði býr sig
undir að stökkva.
SKINFAXI 7