Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.08.1979, Page 20

Skinfaxi - 01.08.1979, Page 20
nú sem leið lá í átt til Grundarfjarðar. En Grundfirðingar sem nú voru fyrir góðri stund vaknaðir, stóðu reiðubúnir á brúnni yfir Mjósund, albúnir að Ioka hringnum með þvi að hlaupa síðasta spöl- inn með keflið góða. Og það tókst. Á slaginu 10 um kvöldið lauk þessu fyrsta, en að Iíkindum ekki síðasta ,,Jökul- hlaupi” HSH. Gylfi Magnússon fékk nú keflið aftur í hendur, þakkaði öllum þátt- takendum fyrir þeirra hlut í velheppnuðu hlaupi og kvað keflið verða varðveitt vel um ókomna framtíð. G.K. Viðtal við KRISTOFER JÓNASSON ÖLAFSVÍK Hann var þátttakandi í landshlaupi FRÍ og síðan Jökulhlaupi HSH. Frjálsar íþróttir hafa verið hans líf og yndi um ára- bil. Fyrst sem þátttakandi í keppni, síðan þegar hann var hættur allri keppni sjálf- ur, þá eru það ekki mörg mót sem Kristó- fer hefur vantað á. Hann er nú formaður frjálsíþróttaráðs HSH. Við hittum Kristófer á dögunum þar sem hann var við starf sitt sem vélgæslu- maður Rafveitu Ólafsvíkur og i von um að vélarnar létu ekki á sér kræla lögðum við fyrir hann nokkrar spurningar um íþróttaferil hans. Hvar hefst þinn íþróttaferill? Ég er fæddur og uppalinn undir Jökli að Arnarstapa og þar byrja ég að æfa 13 ára gamall. Svavar Markússon úr Reykja- vík var þá í sveit á Stapa á sumrin. Hann var þá byrjaður í íþróttum og ég smitaðist af áhuganum í honum. Við bjuggum okkur til gryfju til að stökkva í og bárum -Hækkun áskriftargjalds---------------------------- Þrátt fyrir að verðstöðvun „gildi” nú í landi voru verður ekki hjá því komist að Skinfaxi fylgi í kjölfar annara tímarita og blaða og hækki áskriftargjald sitt. Það er þó reynt að halda þeirri hækkun í algjöru lágmarki enda ábyrgðahluti ef annað væri gert. En sem sagt, ágætu áskrifendur, gjaldið fyrir 1979 hefur verið ákveðið 1500 kr. 20 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.