Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1979, Blaðsíða 26

Skinfaxi - 01.08.1979, Blaðsíða 26
hann í þrem greinum eftir hörkukeppni og varð annar í þeirri fjórðu. Keppni var mjög jöfn í öllum greinum i þessum flokki og réðu oft sentimetrar og sekúndubrot úrslitum. í stelpnaflokki vann besta afrekið Kristín Halldórsdóttir úr KA er hún stökk 4,82 m í langstökki. En mest kom á óvart sigur Sigurlínar Pétursdóttur Bolungarvík í kúluvarpi og er þetta líklega í fyrsta skipti í langan tíma sem Bolvíkingar hljóta Islands- meistaratitil í frjálsíþróttum. í piltaflokki vann Ármann Einarsson UÍ A til fjögurra gullverðlauna með því að sigra í þrem einstaklingsgreinum og vera einn af fjórum í sigursveit UÍA í 4x 100 m boðhlaupi. Þórður Pálsson úr HVÍ var einnig atkvæðamikill þó ekki tækist honum að sigra í neinni grein. Ármann vann besta afrekið í þessum flokki með því að stökkva 5,87 m í langstökki. í teipnafiokki sigraði Svava Grönfeldt UMSB í tveim greinum og vann ágætt af- rek í langstökkinu með því að stökkva 5.31 metra. Bryndís Hólm ÍR vann besta afrekið í þessum flokki, stökk 1.58 m í há- stökki. Þórgunnur Torfadóttir úr USÚ sigraði i kúluvarpi eftir harða keppni og verður fróðlegt að fylgjast með því hvort Austur-Skaftfellingar hafa þarna fundið arftaka Guðrúnar Ingólfsdóttur. Óopinber stigakeppni í hinni óopinberu stigakeppni mótsins sigruðu heimamenn eins og í fyrra og höfðu nú umtalsverða yfirburði, hlutu 98 stig. UMSB hlaut annað sætið með 67 stig og HSH þriðja sætið með 60 stig. Gófl þátttaka Ánægjulegast við þetta mót var hin mikla þátttaka og hversu mörg félög og 26 sambönd sendu þátttakendur. Á listanum yfir þátttökufélög tekur maður eftir mörgum nýjum nöfnum, sem ekki hefur farið mikið fyrir á yngriflokkamótum hingað til, svo sem: Umf. Bolungarvíkur, ÍBÍ, UMSE, UMSS, USÚ og Selfoss. Þá má ekki gleyma þeim sem undanfarin ár hafa lagt ríka áherslu á að taka þátt í þessu móti, svo sem UÍA, HSH, UMSB, Afturelding, UBK, HVÍ og USAH. Skinfaxi hvetur alla þá sem mögulega geta, að halda áfram í þeim anda sem ríkti á Eiðum og stefna að því að gera veg íþróttanna sem mestan. Úrslit úr mótinu fara hér á eftir. Þrír fyrstu í hverri grein: Strákar 12ðra og yngri: 60 m hlaup: sek. Jón B. Guðmundsson Selfossi 8.6 Aðalsteinn Elíasson ÍBl 8.6 Ragnar Stefánsson UMSE 8.9 800 m. hlaup: min. Jón B. Guðmundsson Selfossi 2.38.1 Sigurður Sigurþórsson HSH 2.38.2 Ragnar Stefánsson UMSE 2.38.6 Langstökk: M Jón B. Guðmundsson Selfossi 4.64 Sigfinnur Viggósson UÍ A 4.58 Hermann Einarsson UMSS 4.52 Hástökk: M Sigfinnur Viggósson UÍA 1.45 Jón B. Guðmundsson Selfossi 1.45 Sigurður Sigurþórsson HSH 1.30 Kúluvarp: M Ragnar Klemensson HSH 9.60 Jón Kristjánsson KA 9.21 Aðalsteinn Kristjánsson UÍA 8.60 4 x 100 m boðhlaup: sek. SveitUÍA 59.2 SveitUMSE 59.3 Sveit HSH 61.0 SKIIMFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.