Skinfaxi - 01.08.1979, Síða 29
í júní sl. kom út fréttablað
Ungmennafélags Borgfirðinga ,,Gusa”.
Fréttablað þetta er í algjörum sérflokki
hvað varðar uppsetningu og frágang en
söfnun efnis, vélritun og uppsetningu
annaðist Helgi M. Arngrímsson. Auk al-
mennra frétta eru í blaðinu frásögur og
ritverk. Þá er þar skemmtileg nýjung sem
er örnefnaskrá, þar sem tekin eru fyrir ör-
nefni í Njarðvíkurskriðum og þau merkt
inn á mynd af svæðinu. í blaðinu má auk
þess finna grein eftir Gísla Halldórsson
forseta ÍSÍ sem nefnist „íþróttamann-
virkin eru undirstaðan” og „Kveðja frá
UMFÍ”, sem skrifuð er af Sigurði Geir-
dal.
Til hamingju Borgfirðingar en vonandi
verður ritnefndin starfsamari næst, það
gengur ekki til lengdar að einn maður geri
allt.
-- • ----
Þann 25. maí sl. kom út 1. tbl. af blaði
Umf. Geisla og ber það nafnið ,,Geisla-
hret’". í formála þess, sem ritaður er af
Karli Lúðvíkssyni formanni Umf. Geisla
segir m.a. „að útgáfa þess og dreifing sé
ekki bundin við nein tímamörk, heldur
fari hún eftir dugnaði og áhuga félags-
manna við að leggja til efni í blaðið”.
Þessu fyrsta blaði var dreift inn á öll
heimilu á félagssvæðinu. Blaðið er fjölrit-
að í brotinu A5, og lífgað upp með mynd-
skreytingu.
__ • ----
Umf. Afturelding í Mosfellssveit varð
70 ára í apríl sl. í tilefni þessara tímamóta
gaf félagið út ritið Dagrenning. í ritinu er
þessara tímamóta í sögu félagsins minnst
á margvíslegan hátt. Með viðtölum og
frásögnum er saga félagsins rifjuð upp,
kveðjur og ávörp eru frá Hafsteini Þor-
valdssyni formanni UMFÍ, Páli Aðal-
steinssyni form. UMSK auk ávarps for-
manns Umf. Aftureldingar, Ingólfs Árna-
sonar. Ennfremur er í ritinu afrekaskrá
Umf. Aftureldingar í frjálsum íþróttum
frá upphafi til 1. mars 1979, tekin saman
af Bjarka Bjarnasyni og Jóni Þ. Sverris-
syni.
Ritið prýða myndir úr starfmu. Rit-
nefnd skipuðu: Ingólfur Árnason, Tómas
Sturlaugsson, Bjarki Bjarnason og Jó-
hannes Reykdal. Skinfaxi óskar Aftureld-
ingu til hamingju á þessum tímamótum.
G.K.
mmmoim
UNGMENNAFÉLAGIÐ
AFTURELDING
70 ára
29