Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1979, Blaðsíða 20

Skinfaxi - 01.12.1979, Blaðsíða 20
Ungmennafélag Keflavíkur varð fimmtíu ára á þessu ári en það var stofnað 29. september 1929. UMFK hefur minnst þessara tímamóta á margvíslegan hátt og þar á meðal gefið út veglegt og vandað afmælisrit. Það er Steinar J. Lúðvíksson sem ritstýrir þessu riti sem ber þess merki að fagmaður hafi átt í hlut. 1 ritinu er sögu félagsins gerð allítarleg skil, fjallað er um þœr íþrótta- greinar sem iðkaðar hafa verið innan vébanda UMFK að þessum 50 árum og sjálfsögðu fær leiklistin sína umfjöllun llka. Rætt er við forystumenn, áhugamenn og iðkendur. Ritið er í alla staði mjög fróðlegt og skemmtilegt, prýtt fjölda mynda. Skinfaxi óskar UMFK til hamingju með veglegt afmælisrit svo og þessi tímamót í sögu félagsins. 20 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.