Skinfaxi - 01.12.1979, Blaðsíða 4
gert hluti sem enginn annar getur gert á sama hátt, Þessir hæfileikar þurfa
að fá að njóta sín. Menn eiga því að reyna að vera það sem þeir eru, og geta
orðið, sjálfum sér og heildinni til hamingju.
Því verðmætagildismati sem virðist ríkja í þjóðfélaginu og byggir á aug-
lýsingatækni og sölumennsku, er erfitt að breyta meðal fólks, hvað þá
meðal æskunnar sem dáir og tignar stórstjörnur á ýmsum sviðum cg hrífst
með tískunni sem er nátengd fyrrnefndum fyrirbærum. En ef slíkt á að
gerast og takast, þarf að beita sömu aðferðum við að vekja áhuga á starfi
sem er uppbyggjandi og í senn skemmtilegt fyrir æskufólk að kljást við og
taka þátt í.
Frjáls skoðanaskipti og lýðræði eru undirstaða okkar þjóðfélags en
verður þó að vera innan ákveðins ramma, (sem deila má um hvernig eigi að
vera) því samábyrgð fólks er mikilvægasti þátturinn í heiðarlegu og réttlátu
þjóðfélagi.
Góð uppeldisáhrif og fagrar hugsjónir sem góður félagsskapur getur
vakið og glætt í brjóstum manna, hefur áhrif á líf þeirra alla lífsbrautina.
Þaðp má því segja að allur góður félagsskapur sé mannbætandi.
Einar Ben. klæddi fagrar hugsjónir þessu kvæði
Því lofí æskan alla tíð,
þá eiða hjörtun sverji,
að ævi sinni öllum lýð,
til auðnu og gagns hún verji.
Talandi um brenglað verðmætagildismat er gott að hafa í huga máltækið
„það þarf sterk bein til að þola góða daga”, og „það er ekki minni vandi að
gæta fengins fjár en afla”.
Ég tel að fjöldaþátttaka sé okkar hreyfingu mikilvægust, þá fyrst er hún
öflug og líkleg til þess að hafa áhrif góðum málum til framdráttar. Við
verðum í okkar starfi að stefna að því að ná til sem flestra og til alls æsku-
fólks.
Þá tel ég að þeir sem leggja sig fram við að ná sem lengst á keppnisbraut-
inni eigi að hljóta góðan stuðning frá félögum og sambandi.
Sagt í fáum orðum: Jafnvægi skal ríkja milli afreksíþrótta og fjöldaþátt-
töku, félagsstarf eflt og æskulýðsstarfið mikilvægast.
Hermann Níelsson.
4
SKINFAXI