Skinfaxi - 01.02.1980, Síða 6
hyggjast leggja stund á blak
og*vantar einhverja aðstoð s.s.
leikreglur, áhöld eða jafnvel
leiðbeinendur, þá vill Guð-
mundur benda á að skrifstofa
Blaksambandsins er í íþrótta-
miðstöðinni í Laugardal og
þangað skuli menn leita með
sín vandræði og þar verði þau
leyst á sem farsælastan hátt.
Tengslin við UMFÍ og ÍSÍ
Að sögn Guðmundar hafa
þessi tengsl engin verið, enda
hafi hann ekki komið auga á
tilgang þeirra. En þó vildi
Guðmundur láta þess getið að
á vegum BLÍ og ÍSÍ hafi verið
unnið þarft verk á sviði leið-
beiningastarfa. Með aukinni
fræðslu og kynningu út um
land hyggst Guðmundur nota
skrifstofu Umf. íslands þar
sem hún sé í mjög nánum
tengslum við ungmenna- og
íþróttafélögin úti á landi.
Þegar hér var komið sögu
hafði kaffið aðmestu gengið til
þurrðar og langt liðið kvölds
og var því mál að stöðva þetta
sundurslitna rabb. En Guð-
mundur vildi að lokum
minna á að það sem blakið
hefði fram yfir margar bolta-
íþróttir væri að það væri jafnt
við hæfi þeirra sem trimmuðu
sér til heilsubóta og þeirra
sem leggðu íþróttina fyrir sig
með keppni í huga. Undirrit-
aður þakkar Guðmundi spjall-
ið og óskar blakinu og blökur-
um alls hins besta. FI.
VÍSNAÞÁTTUR SKINFAXA
Ferskeyllan er Frónbúans,
jyrsta barnaglingur.
En verður seinna i höndum hans,
hvöss sem byssustingur.
Vonandi eru lesendur Skinfaxa mér sam-
mála um að tími sé til kominn að gera
vinkonu minni lausavísunni nokkur skil hér
í blaðinu. Raunar tel ég það ekki vansa-
laust að jafn þjóðholl samtök og ungmenna-
félagshreyfingin hafi ekki gert henni hærra
undir höfði en raun ber vitni.
Mér býr í grun að lausavísan sé miklu
sprækari manna á meðal, en ýmsir vilja
vera láta, þótt þær raddir heyrist, sem finna
henni allt til foráttu. ,,Þetta er ekki skáld-
skapur,” segja þeir, „þetta er úrelt og hefur
raunar aldrei haft neitt bókmenntalegt
gildi,” eða „þetta er liðin tíð.” í mínum
eyrum eru þessi rök sem falskir tónar frá
útlendri eftiröpunartísku í ljóðagerð.
Ekki skal þetta rætt frekar, og hvort sem
þessi þáttur í alþýðumenningu okkar telst
íþrótt, list eða lcikur þá verður honum
framvegis helgað örlítið rúm í Skinfaxa.
Hagyrðingar allra ungmennafélaga, allra
landshluta og allir aðrir hagyrðingar eru
beðnir að leggja okkur lið, en það skal tekið
fram að hér verður einungis birt það sem
stenst kröfur bragfræðinnar, innan þess
ramma, geta menn að öðru leyti farið eigin
leiðir, eðs eins og N.V. sagði:
Min eru Ijóð ei merkileg
minir kæru vinir.
En oft og tiðumyrki ég
öðruvisi en hinir.
Þið megið gjarnan senda okkur smellnar
vísur, eða góða fyrriparta, sem við reynum
síðan að koma fyrir í næstu vísnaþáttum
Skinfaxa en svona til að byrja með fáið þið
hérna þrjá fyrriparta til að glíma við:
Strax ibyrjun vonum við
að visnaþáttinn styðjið þið.
Bragfrœðin ei bregðast má,
né botna fjöldi góður.
Leit ég unga liþurtá,
lömuð tungan þagði.
Vinsamlegast sendið okkur botnana fyrir
2. apríl, svo við getum birt þá bestu í næsta
blaði.
Utanáskriftin er: Vísnaþáttur Skinfaxa,
Pósthólf 5271, 125 Reykjavík.
Með kveðju,
Á sgrimur Gislason.
6
SKINFAXI