Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1980, Blaðsíða 22

Skinfaxi - 01.02.1980, Blaðsíða 22
Ágúst Þorsteinsson UMSB. Grindahlaupin Það eru tugþrautarmenn sem eru í efstu sætunum í grindahlaupunum og var Stefán mjög góður í 400 m grind. Stefán er nú hættur keppni í tugþraut að eigin sögn vegna meiðsla og er von- andi að hann snúi sér alveg að 400 m grindahlaupi næstu árin. Annars beini ég því til ungra frjálsíþróttamanna að æfa meira grindahlaup. Með því stuðla þeir að betri árangri í þessari grein sem virðist ekki vanþörf á, auk þess sem grindahlaup er mjög góð alhliða þjálfun. Stökkin Ég get nú ekki orða bundist yfir árangrinum i stökkunum því hann er til háborinnar skammar það held ég að fleiri séu sammála mér um. Og minni ég á í því sambandi að heimsmet kvenna í langstökki er 7,09 m og hástökki kvenna 2,01 m. Enda sést best á því þegar litið er yfir skrána að flestir þeir menn sem eru þar eru annaðhvort tugþrautar- menn eða gamlir æfingalausir jaxlar sem eru búnir að vera að hjakka í sama farinu í mörg ár. Ég skora á menn að vakna nú til lífsins í þessum efnum og fara að æfa þessar greinar og það allt árið. Köstin Það ber mest á Einari Viihjálmssyni í köstunum Stefán Friðleifsson UÍA. enda er hann mikið kastara- efni þó ekki sé meira sagt. Þó virðist hann ekki hafa náð því út úr spjótinu sem til var ætlast af honum en bætir sig aftur á móti meira í sínum aukagreinum. Einar þarf miklu meiri tæknilega þekk- ingu til að ná betri árangri. Pétur Pétursson tugþrautar- maður átti við meiðsli að stríða en náði samt mjög þokkalegum árangri í kúlu- Einar Vilhjálmsson UMSB varpi. Búast má við miklum framförum hjá Pétri á næsta ári og er ekki ólíklegt að hann kasti yfir 16 m þar sem hann einbeitir sér nú að kúluvarpi. Hinn 48 ára gamli Þorsteinn Alfreðsson sló öllum ungu mönnunum ref fyrir rass í kringlunni og finnst mér það ekki sannfærandi með fullri virðingu fyrir Þorsteini. Enda er það tilfellið að árangurinn í kringlunni er ekki góður. Sleggjukastið er alger hörm- 22 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.