Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1980, Blaðsíða 10

Skinfaxi - 01.02.1980, Blaðsíða 10
Bjarni K. Skarphéðinsson sem sæmdur var starfsmerki UMFÍ á þingi UMSB 9. feb. s.l. er ekki þekktur langt út fyrir sitt hérað fyrir sín félags- málastörf. Hann er maður sem sjaldan hefur verið í for- ystusveit ungmennafélags- hreyfingarinnar, en starfað í kyrrþey, sem hinn trausti félagi, ætíð tilbúinn með hug- myndir, jákvætt viðhorf og einlægan áhuga á að leggja hverju góðu máli lið. Tíðinda- manni blaðsins fannst því við- eigandi að heyra svolítið frá honum sjálfum um félags- starfið. Það upplýstist að Bjarni er fæddur fyrsta dag ársins 1927 vestur á Þingeyri. Gekk þar snemma í ungmennafélag en starfaði þó fyrst og fremst sem skáti. 1962 fluttist hann til Borgarfjarðar og gerðist véla- gæslumaður við Andakíisár- virkjun. Eg gekk strax í Ungmenna- félagið íslending. Félagið var yi ðtal við Bjama Skarphéðinsson fámennt með virkum kjarna. Ég var fljótlega kosinn í út- breiðslunefnd og átti hug- mynd að því að sent var dreifibréf til allra unglinga er ekki voru í félaginu og þeim boðið að vera með. Upp úr því var stofnuð unglingadeild- in Æskan 1967 og var ég gæslumaður hennar um ára- bil. Bjarni Vilhjálmsson þá- verandi formaður félagsins var mjög virkur og áhugasamur um þessa stofnun. Þá var ég forstöðumaður bókasafns ung- mennafélagsins frá 1962 þar til á síðasta ári að reglum safnsins var breytt. Það er nú undir stjórn Héraðsbókasafns- ins en fer þó ekki úr hreppn- um. Safninu er tvískipt, út- lánamiðstöð er á Hvanneyri og er þar ágæt lesstofa, og hluti er á Brún í Bæjarsveit undir ágætri stjórn Eyjólfs Hjálmarssonar. Áður var Hvanneyrarhlutinn í húsi félagsins við Hreppslaug. Starfaðir þú ekki eitthvað að Húsafellsmótum? Jú, ég vann þar talsvert bæði fyrir UMSB og eins í hjálparsveitinni OK. Hvað viltu segja um starfsemi ungmennafélaganna? Mér finnst þetta heppilegt form ekki síst í dreifbýli, þar sem starfsemin er á mjög breiðum grunni. fþróttir eru mjög æskilegar en mega ekki yfirgnæfa félagsmálaþáttinn sem ég tel öllu þýðingarmeiri. Nú sé ég að þú ert með Lions- merki í barminum. Hvað finnst þér um samskipti klúbbanna og ung- mennafélagshreyfingarinnar? Ég hef lengi starfað í Lions- hreyfingunni og haft af því mikla ánægju. En því er ekki að neita að ég hefi oft heyrt um það talað — og þá ekki síst góða og einlæga ung- mennafélaga að „klúbbarnir” væru að drepa ungmenna- félögin. Þetta finnst mér hið mesta öfugmæli. Það má reyndar með nokkrum sanni segja, að stundum veiki klúbbarnir ungmennafélögin með því að draga til sín áhugasama félagshyggjumenn. En ég tel algerlega ástæðulaust að láta þessi mál þróast þannig. Mér finnst að í klúbbunum geti ungmennafélögin átt — og eigi á vissan hátt nú þegar — sterka og ómetanlega bak- hjarla. Klúbbarnir hafa margt gott gert í æskulýðsmálum en þeir mættu vissulega taka þessi mál fastari tökum. Mitt eigið viðhorf í þessum efnum er, að klúbbstarfið eigi að vera víkjandi, en ungmennafélags- starfið að sitja í fyrirrúmi. Og þannig hefur það oft verið í raun hjá mér og mínum Lionsfélögum. Er eitthvað sem þú vildir segja að lokum? Ég tel starf ungmennafélag- anna þýðingarmikinn þátt i uppeldis- og menningarmál- um íslensku þjóðarinnar. Það er því þjóðarnauðsyn að vegur þeirra sé sem mestur. PG. 10 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.