Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1980, Blaðsíða 9

Skinfaxi - 01.02.1980, Blaðsíða 9
stjórn hans þökkuð mikil störf Ritari Haukurlngibergsson a síðasta ári. Meðstjórn IngibjörgDamelsdóttir. Ný stjórn UMSB er þannig skipuð: __ . _ Formaður Ófeigur Gestsson Á þinginu var afhentur veg- Varaformaður Helgi Bjarnason legur bikar til eignar þeim Gjaldken Pálmi Ingólfsson íþróttamanni UMSB sem Viðtal við Bjarna Sigurðsson Þeir sem komið hafa á frjálsíþróttamót í Borgarfirði undanfarin ár munu eflaust kannast við Bjarna Sigurðs- son, áhugasaman og kapps- fullan. Dags daglega hefur Bjarni eftirlit með vegum Borgarfjarðar og bregður sér stundum upp í veghefil ef honum ofbýður holufjöldinn. Það kom fram í spjalli okkar að hann er fæddur í Stykkishólmi 19/1 1933 en fluttist ungur til Borgarness. Félagi í Ungmennafélaginu Skallagrími hefur hann verið í 30 ár, stundum í stjórn og stundum ekki. Annars hefur félagsstarfið verið að meirihluta á vegum UMSB, en þar hef ég lengi verið í frjálsíþróttanefnd. Mér finnst keppendur hér alltaf líta á sig fyrst og fremst sem UMSB-fólk. Það er ekki sami krafturinn þegar keppt er inn- byrðis eins og út á við. Þá er kappið að standa sig vel undir ttterki UMSB. Starfið hefur gengið mjög vel að undan- förnu og það hefur haldið manni við þetta. Varst þú sjálfur keþþandi áður fyrr? Nei, en synir mínir tveir, Kristján og Friðjón hafa verið með og það hefur náttúrlega ýtt undir þetta hjá mér. (I skýrslu UMSB sé ég að Friðjón á einmitt Borgarfjarð- armet í 100 og 200 m hlaup- um). Nú varst þú í landsmótsnefnd 1975 hvernig li'kaði þér það? Það var mjög skemmtilegt verkefni. Hins vegar varð fjár- hagsútkom# UMSB ákaflega dapurleg og skuldir við félög- in voru verulegar. En hin góða samstaða hér kom þá vel í ljós, því félögin strikuðu öll skuldirnar út og björguðu þar meðUMSB. Hvað heldurðu um þátt UMSB á næsta landsmóti? Ég á von á því að hann verði góður. Við stöndum að vísu illa hvað sundið varðar, en ég á von á að við verðum með harðsnúið lið í frjáls- íþróttum og jafnvel körfu- bolta og knattspyrnu. Er mikill munur á félagsstarf- inu nú ogfyrir 30 árum? Það eru nú orðnir alltof margir klúbbar starfandi. Dreifingin á starfinu verður of mikil og kemur niður á öllum Manstu eftir nokkru sérstœðu úr starfinu? Mér dettur þá helst í hug bók sem var í eigu Umf. Skallagríms en er nú á mestar framfarir hafði sýnt á síðasta ári. Bikarinn gáfu þau Ingi- mundur Ingimundarson og Ragnheiður kona hans og var það íris Grönfeldt sem hlaut gripinn. Byggðasafninu. Tilkoma þess- arar bókar var sú að þegar Ungmennafélagið byggði Skallagrímsgarð (lystigarðinn í Borgarnesi), ég held milli 1935 og ’40, var félagið komið í mikla skuld. Gátu menn skrifað nafn sitt í bókina fyrir eina krónu. Hver blaðsíða var númeruð og vísa skrifuð efst á síðuna, síðan drógu menn númer úr kassa er vísaði til blaðsíu í bókinni. Inn munu hafa komið um 300 kr. sem var meira en fyrir skuldinni og var afgangurinn lagður í sundlaugarsjóð. Sá maður er stóð fyrir þessu var Friðrik Þorvaldsson. Nú nýlega sendi hann félaginu 10 þús. kr. að gjöf með þeim orðum að þetta mundi vera svipuð upphæð og ein króna þegar bókin varð til. Eitthvað að lokum Bjarni? Já, ég verð að segja það að mér hlýnar alltaf um hjarta- rætur þegar ég sé að eldri mönnum er talið það til kosta að hafa verið ungmennafélagi frá þeim tíma er ungmenna- félögin voru að hasla sér völl. Ég held að gamla ungmenna- félagshugsjónin gæti bætt það ástand í þjóðfélaginu sem við búum við í dag. Ég vil að lokum óska hreyf- ingunni alls hins besta og að hún megi eflast og dafna. Ungmennafélagshreyfingin á alltaf erindi til fólksins. PG. SKINFAXI 9

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.