Skinfaxi - 01.08.1981, Blaðsíða 4
Forseti íslands, menntamálaráð-
herra, bæjarstjórn Akureyrar,
heiðursgestur Vilhjálmur Hjálm-
arsson og frú, keppendur, starfs-
menn, ágætu mótsgestir.
Fyrir hönd Ungmennafélags fs-
lands býð ég ykkur öll velkomin til 17.
landsmóts UMFÍ sem haldið er hér á
Akureyri í umsjá Ungmennasam-
bands Eyjafjarðar. Það fer vel á þvi að
þessi staður skyldi valinn — en einmitt
á þessu ári eru 75 ár liðin síðan fyrsta
ungmennafélagið var stofnað — en
það var Ungmennafélag Akureyrar.
Fyrsta landsmót UMFÍ var haldið
hér 1909. Aðstaða til slíks mótshalds
hefur sjálfsagt ekki verið góð. Æfingar
vafalaust ekki eins skipulagðar og nú
MÓTSETNINGARRÆÐA
PÁLMA GÍSLASONAR
_ *
formanns UMFI
er. Á hinn bóginn þurftu þátttakend-
ur að leggja mikið á sig til að mæta á
slíkt mót. Fræg er saga tveggja sunn-
lenskra keppenda er gengu norður
Kjöl til þátttöku á þessu fyrsta lands-
móti. Þó Ungmennafélag Akureyrar
hafi liðið undir lok hefur Akureyri
ætíð tengst ungmennafélagshreyfing-
unni sem miðstöð hins þróttmikla
félagsstarfs í Eyjafirði. Hér var haldið
myndarlegt landsmót 1955. Nú er
haldið hér landsmót á ný — landsmót
sem margar ötular hendur hafa unnið
að. Þakkir skulu færðar forystumönn-
um bæjarmála á Akureyri fyrir þá
miklu aðstoð er þeir hafa veitt svo mót
þetta geti farið fram með sem mestum
glæsibrag. Aðstaða hér öll er til mikill-
ar fyrirmyndar. Landsmótsnefnd og
framkvæmdastjórum hennar skulu
hér færðar þakkir fyrir fórnfús störf og
góða skipulagningu.
Þegar fyrstu ungmennafélögin voru
stofnuð 1906 varð vakning hjá þjóð-
inni. Barátta ungmennafélaga fyrir
betra landi — bættri þjóð fólst í kjör-
orðinu „Ræktun lands og lýðs”. Þá
var vor í hugum ungs fólks. Ung-
mennafélögin hófu að klæða landið
skógi, áhugi á íþróttum tók að eflast,
samkomuhald, málfundir og barátta
fyrir byggingu héraðsskóla sem urðu
undirstaða menntunnar dreifbýlisins.
Styrkur ungmennafélaganna í dag er
sá að þau hafa aðlagast nýjum tíma. I
dag eru ungmenriafélagar um 24 þús. í
196 félögum. Starfssvið ungmenna-
félaganna er víðtækt: íþrótir, leiklist,
þjóðdansar, skák, bridge, félagsmála-
fræðsla o.m.fi. Heildarsamtökin reka
síðan þjónustumiðstöð í Reykjavík
þar sem unnið er að fjölbreyttum
verkefnum fyrir félögin.
Mikilvægur þáttur í starfsemi ung-
mennafélaganna er félagsmálafræðsl-
an, enda hafa ungmennafélögin verið
kölluð „Félagsmálaskóli þjóðarinn-
ar.” Félagsmálaskóli UMFÍ starfar í
námskeiðsformi um allt land og hafa á
s.l. 10 árum verið haldin um 350 nám-
skeið.
Þótt segja megi að í starfi ung-
mennafélaganna hafi skipst á skin og
skúrir er víst að síðasta áratuginn hef-
ur stöðugt verið stefnt fram á við. Sá
fríði hópur sem hér er mættur til leiks
ber vott um það. Aldrei hafa jafn
margir mætt til keppni á landsmót
UMFI og frá jafn mörgum aðilum.
Ætla má að keppendur, sýriingahópar
og starfsmenn séu vart undir tveim
þúsundum og ef þeir eru taldir með
sem á einn eða annan hátt hafa unnið
að því að gera þessa þátttöku svo
myndarlega með starfi og undirbún-
ingi í heimahéraði má vafalítið tvö-
falda þessa tölu. Þeim skulu öllum
færðar þakkir.
Vaxandi áhugi fyrir almennings-
íþróttum og útivist hefur orðið þjóð-
inni mikil blessun. íþróttir afreks-
manna eru það einnig — þær hvetja til
almennrar þátttöku, þær hvetja ungt
fólk til að leggja sig fram. Þessa tvo
þætti má ekki aðskilja.
Landsmót UMFÍ hafa stöðugt auk-
ist að umfangi. Á hverju móti er bætt
við einhverjum íþróttagrcinum. Og
4
SKINFAXI