Skinfaxi - 01.08.1981, Blaðsíða 8
Skarphéðinsmenn í óða önn að reisa sitt stóra tjald.
Á fimmtudagskvöldi streymir
fólk til Akureyrar. Rútur og
einkabílar fullir af fólki úr öðrum
landshlutum eru að koma fram
eftir öllu. Einnig koma margir
flugleiðina og hefur ferðum til og
frá Akureyri verið fjölgað um
þessa helgi. Stór tjaldborg rís fyrir
ofan húsmæðraskólann. Þar hefur
hvert héraðssamband sitt afmark-
aða svæði og eru allir í óða önn að
reisa tjöld og koma sér fyrir. Mikil
eftirvænting skín úr svip hvers og
eins enda stórhátíð í nánd, lands-
mót UMFI hefst á morgun.
Menn eru ekki allskosta ánægð-
ir með veðrið, rigning og kuldi, en
ekki er hægt annað en vera bjart-
sýnn þar sem landsmótin hafa oft-
ast fengið náð fyrir veðurguðun-
um.
Landsmótsnefnd hefur boðað
til fundar með flokks- og farar-
stjórum kl. 9 um kvöldið. Þar er
farið yfir það helsta svo allt verði á
hreinu þegar mótið hefst með
morgni.
Verið er að leggja síðustu hönd
á nýju íþróttahöllina og fjöldi
fólks vinnur fram á miðja nótt við
að lagfæra lóðina, slétta úr byngj-
um, tyrfa og gróðursetja. Mikið
hefur verið unnið seinustu dagana
fyrir mótið og er nú allt svo til
tilbúið fyrir keppnina.
Mótið hefst
Föstudagurinn 10. júlí rennur
upp og öflum til mikil léttis er
veðrið ágætt, sól og mikill hiti
miðað við daginn áður. Veðrið
hafði tekið miklum stakkaskipt-
um og meiri en bjartsýnustu
menn þorðu að vona, veðrið hélst
þannig alla mótsdagana.
En áður en menn eru almenni-
lega búnir að þurrka stírurnar úr
augunum er keppni hafin út um
allan bæ en alls var keppt á 12
stöðum. Aðstaða til keppni á Ak-
ureyri er mjög góð og rómuðu
bæði gestir og keppendur hana.
Ungmennafélagar í íþrótta-
Séð yfir hluta tjaldbúðanna.
8
SKINFAXI