Skinfaxi - 01.08.1981, Blaðsíða 7
AVARP
Ingvars Gíslasonar
menntamálaráðherra
Virðulegi forseti fslands. Full-
trúar bæjarstjómar Akureyrar.
Agætu áheyrendur.
Eg óska Ungmennafélagi Islands
velfarnaðar í lengd og bráð og bið því
sérstakrar blessunar á þessum degi og
óska félginu til hamingju með þá hátíð
sem nú er að hefjast.
Eg vil minnast þess sérstaklega að
ungmennafélagshreyfingin — sem
skipulögð samtök — átti vöggu sína í
Akureyrarbæ. Héðan barst hreyfingin
út um landið og festi rætur hvarvetna
um byggðir Islands.
Jóhannes Jósefsson, fyrsti formaður
Ungmennafélags Oddeyrar, — eins og
stofnendur nefndu fyrsta ungmenna-
félagið — tekur svo til orða í ævisögu
sinni, sem Stefán Jónsson alþm.
skráði eftir honum:
„Við ætluðum ungmennafélögun-
um stórt hlutverk í þjóðfélaginu. Þau
áttu að endurvekja reisn þjóðveldis-
tímabilsins, verða afivaki allra dáða
og skóli þjóðlegra mennta, andlegra
og veraldregra.”
Mér gefst ekki tími til þess nú að
meta í smáatriðum hversu ung-
mennafélögunum hefur tekist að
standa við þessi fyrirheit. En hitt er
víst að ungmennafélögin fóru með
stórt hlutverk í sjálfstæðisbaráttu og
menningarsókn þjóðarinnar á fyrri
hluta þessarar aldar og skiluðu hlut
sínum vel í samstarfi við önnur fram-
faraöfi í þjóðfélaginu.
Og enn í dag gegnir ungmennafé-
lagshreyfingin mikilsverðu hlutverki í
félags- og menningarlífi þjóðarinnar.
Þótt tímarnir séu breyttir á ytra borði
frá því sem var fyrir 75 árum, þá full-
yrði ég að á þessari stundu er engu
síður þörf fyrir menningaráhuga og
þjóðræknishugarfar ungmennafélag-
anna en þá var.
Jóhannes Jósefsson sagði að ung-
mennafélagshreyfingunni heíði verið
ætlað það hlutverk að vera aflvaki
allra dáða, — hvorki meira né minna.
Eg skil orð Jóhannesar þannig að þcir
félagar hafi ætlað hreyfingunni að
manna og mennta íslendinga svo vel
að þeir væru færir um að stjórna sjálfir
ríki sínu, reka sjálfir atvinnuvegi sína,
ávaxta mennigararf þjóðarinnar með
skapandi list og skáldskap, lærdómi
og íþróttum jafnfætis. Þetta merkir að
ungmennafélagshreyfingunni var ætl-
að að leysa úr læðingi þá orku, sem
innra býr með hverjum einstaklingi og
veita henni í sameiginlegt forðabúr
andlegrar orku íslensku þjóðarinnar.
Slík var orkustefna ungmennafélag-
anna.
Það er ærið háleitt markmið og
líklega ekki raunsætt, ef krafist er
skýrra svara um það, hvernig þessu
markmiði skuli náð. Þrátt fyrir allt eru
íslendingar, þar með taldir ung-
mennafélagar, breyskir menn í
breyskum heimi. En einmitt þess
vegna er nauðsynlegt að hafa slíkt há-
leitt markmið til viðmiðunar, efþjóðin
ætlar að lifa af næstu 75 ár sem frjáls
og atorkusöm menningarþjóð. Hin
andlega orkustefna ungmennafélag-
anna getur forðað þjóðinni frá miklum
voða. Hún er þaðafi sem þjóðin þarfn-
ast. Af þeim sökum bið ég þess að
ungmennafélögin minnist ávallt upp-
runa síns og starfi ætíð í anda frum-
herjanna, haldi uppi reisn lýðveldis-
ins og verði ævinlega afivaki allra
dáða og skóli þjóðlegra mennta, and-
legra og veraldlegra, eins ogjóhannes
Jósefsson orðaði það.
Til hamingju með daginn, ung-
mennafélagar!
Gleðilega hátíð!
SKINFAXI
7