Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1981, Síða 10

Skinfaxi - 01.08.1981, Síða 10
Við af stúlkunum úr Gerplu tóku byrjendur úr Fimleikaráði Akureyrar og sýndu áfram. Fannst fólki nóg komið af fimleik- um að því loknu a.m.k. í bili. Þá fór fram 800 m hlaup. I karlaflokki sigraði Borgfirðingur- inn Jón Diðriksson og f kvenna- Ookki Hrönn Guðmundsdótir UMSK bæði á nýjum landsmóts- metum. Frjálsíþróttakeppnin Keppni í frjálsum íþróttum var mjög jöfn og spennandi og stóð aðalbaráttan á milli HSK og UMSK. Leikar fóru þannig að lokum að HSK sem stóð sig mjög vel vann UMSK með 4 stigum. Sami stigafjöldi skildi UIA og UMSB sem lentu í 3. og 4. sæti. Arangur var mjög góður, sá besti í sögu landsmótanna. Landsmótsmet voru sett í flestum keppnisgreinum og í mörgum greinum voru margir með betri árangur en gamla landsmótsmet- ið hljóðaði upp á. I langstökkinu, sem var ein af fyrstu greinunum sem keppt var í, Þulur mótsins, Hafsteinn Þorvalds- son, fylgist með því sem er að gerast hinum megin á vellinum. sigraði hinn bráðefnilegi Kristján Harðarson UMSK eins og spáð var fyrir. Hann var einnig framar- lega í 100 m hlaupi oghástökki, en það sigraði Stefán Friðleifsson UIA á nýju landsmótsmeti. I kringlukasti skipuðu þeir Vé- steinn Hafsteinsson HSK og Helgi Þ. Helgason sér í fyrstu tvö sætin. Kúlan fór einnig þannig en þar hafnaði Helgi í fyrsta sæti, hann náði að varpa kúlunni Það er ekki verra að hafa með sér lukkudýr. 10 lengra en Vésteinn í lokakastinu. Vésteinn var einnig framarlega í spjótkastinu en þar var hann næstur á eftir Einajá Vilhjálms- syni UMSB sem bar höfuð og herðar yfir keppinauta sína. Hann sigraði örugglega og setti glæsilegt landsmótsmet. Egill Eiðsson UIA var maður spretthlaupanna, en hann sigraði í 100 og 400 m hlaupunum auk þess sem hann var í sigursveitum UlA í boðhlaupunum. í lengri hlaupunum bar mest á Jóni Dið- rikssyni UMSB en hann sigraði í 800, 1500 og 5000 metrunum og setti landsmótsmet í öllum þess- um hlaupum eins og við var að búast. Brynjólfur Hilmarsson, hinn efnilegi hlaupari þeirra UIA manna, fylgdi Jóni vel eftir og hafnaði í 2. sæti í þessum þrem hlaupum. Gísla Sigurðssyni UMSS gekk mjög vel á mótinu, hann sigraði í stangarstökki á glæsilegu lands- mótsmeti og einnig í grinda- hlaupi, en þar mældist meðvindur of mikill. Þá var hann annar í 100 m. Góður árangur hjá Gísla enda var hann næst stigahæstur, næst- ur á eftir Jóni Diðrikssyni. Þrí- stökkið var keppni á milli þeirra HSK manna Kára Jónssonar og Guðmundar Nikulássonar og lauk þeirri viðureign með sigri Kára. í kvennahlaupunum bar mikið á UMSK. Svanhildur Kristjóns- dóttir sigraði í 100 m og Hrönn Guðmundsdóttir bæði í 400 og 800 m. Þá sigraði Siurbjörg Karlsdóttir UMSE í 1500 m hlaupinu eftir harða keppni við Guðúnu Karlsdóttur. Sveit UMSK sigraði síðan boðhlaupið. Ragna Erlingsdóttir HSÞ sigraði grindahlaupið og var á aðeins betri tíma en systir hennar Hólm- fríður UMSE. I öllum þessum greinum voru sett landsmótsmet. SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.