Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.08.1981, Page 11

Skinfaxi - 01.08.1981, Page 11
Systurnar Svava og íris Grön- feldt stóðu sig vel. Svava sigraði langstökkið á nýju landsmótsmeti og Iris sigraði í spjótkastinu en í þeirri grein stóðst spáin úr síðasta tbl. Skinfaxa 100%. Hástökkið sigraði María Guðnadóttir HSH, en í öðru sæti varð Guðrún Sveinsdóttir UMSK. Hún stökk sömu hæð og María, en notaði íleiri tilraunir. Þær stöllur unnu besta afrekið í frjálsum íþróttum kvenna. I kúlu sigraði Soffía Gestsdóttir HSK en í öðru sæti kom Helga Unnarsdóttir UIA en hún sigraði í kringlunni, átti að- eins lengra kast en Elín Gunnars- dóttir HSK. Sundkeppnin Eins og við var að búast voru Skarphéðinsmenn sterkastir í sundinu og unnu stigakeppnina með miklum mun. Bar mikið á þeim við verðlaunaafhendingar þar sem oft voru þrír frá HSK í verðlaunasætum í sömu grein- inni. Þar var fremstur í flokki Tryggvi Helgason, auk þess að vinna besta afrekið þá var hann stigahæstur í keppni karla. Hann vann þrjár greinar, 100 og 200 m Tekið á í sundinu. Starfsíþróttir Keppt var í 6 starfsíþróttum að þessu sinni og voru það sömu greinarnar og keppt var í á Sel- fossi. Starfshlaupið var fjölmenn- ast og fylgdist mikill fjölcli fólks með því en það fór fram á íþrótta- vellinum. Þar sigraði Kjartan P. Einarsson USVS örugglega. I keppninni lagt á borð sem fór fram í Hústnæðraskólanum sigr- Mikill fjöldi fólks fylgdist jafnan með keppninni. Fremst á myndinni má þekkja Þórð Jónsson. bringusund og 200 m fjórsund. Þá var hann einnig í báðum sigur- sveitum HSK í boðsundunum. Þröstur Ingvarsson var einnig sigursæll, sigraði í 100 m skrið- sundi á eftir félaga sínum Huga Harðarsyni sem einnig sigraði í 100 m flugsundi. Annars vakti Eðvarð Eðarðsson UMFN sigur- vegari í 100 m baksundi mikla at- hygli. Hann gerði sér lítið fyrir og setti Islandsmet drengja og pilta í 100 m baksundi í 4x100 m fjór- sundi. Hjá konunum var stigahæst Sonja Hreiðarsdóttir UMFN, hún sigraði í 100 m baksundi, 200 m bringusundi og í 200 m fjór- sundi. Einnig vann hún besta af- rekið. Góð afrek unnu einnig þær María Óladóttir og Ólöf L. Sig- urðardóttir í 100 m bringusundi og skriðsundi. Þá bar einnig á Mar- gréti M. Sigurðardóttur UMSK en hún sigraði í 100 m flugsundi og hlaut annað sætið í 200 m fjór- sundi og það þriðja í 200 m bringusundi. Líkt og í frjálsum féllu flest landsmótsmetiu í sundinu. Að- eins í fjórum greinum var ekki slegið met. SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.