Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1981, Blaðsíða 12

Skinfaxi - 01.08.1981, Blaðsíða 12
Frá dráttavélakeppninni, þar borgar sig að fara að öllu með gát til að fá sem fæst refsistig. I starfshlaupinu verða menn að vera snöggir að vega og meta hlutina. aði Margrét Sveinsdóttir UMSE, hún var vel að sigrinum komin í annars mjög jaínri keppni. Ann- ars tóku 16 þátt í þessari keppni og þar af aðeins 1 karlmaður. A Lundstúni fór fram keppni í dráttavélaakstri. Vignir Valtýs- son HSÞ sigraði í keppninni í sjötta skiptið í röð, góður árangur hjá Vigni og líklega langt þangað til einhver annar slær þetta met, ef það verður þá einhvern tíma sleg- ið. A sama stað fór fram keppni í hestadómum, þar sigraði Kristín Thorberg UMSE en hún var eina konan sem keppti í þessari grein. I línubeitingu var þrefaldur HSÞ sigur, fyrstur var Sigurður Sigurðsson frá Húsavík, hann sigraði félaga sína naumlega. Flestar plöntur í jurtagreiningu þekkti Guðmundur Jónsson HSK og sigraði því í þeirri keppni en hún fór fram í Húsmæðraskólan- Glíma I glímu voru aðeins 9 þátttak- endur og var þeim skipt í tvo flokka, cldri og yngri. I yngri ílokknum sigraði Páll Sigurðsson HSK, hlaut 4 vinninga af jafn mörgum mögulegum. I eldri ílokknum var það Pétur Yngva- son HSÞ sem lagði alla sína mót- herja og sigraði því. ]údó Júdóinu var einnig skipt í tvo flokka. I ílokki drengja 17 ára og yngri sigraði örugglega bráðefni- legur strákur úr UMSK, Tryggvi Tryggvason. Hann lagði alla sína andstæðinga á svokölluðu „Ippon” og átti nokkuð auðvclt með það. Fram kom gagnrýni á að júdóinu skyldi ekki vera skipt eftir þyngdarflokkum en Tryggvi var nokkuð þyngri en mótherjar hans. I flokki 18 ára og eldri sigraði Omar Sigurðsson eftir harða glímu við félaga sinn Sigurð Barist af hörku í handknattleiknum. 12 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.