Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.08.1981, Qupperneq 14

Skinfaxi - 01.08.1981, Qupperneq 14
Pálmi tekur við gjöf frá Ludvik Jerdal Noregi. kcpptu nú í níunda sinn á lands- móti. Seinasti liðurinn í hátíðardag- skránni var úrslitaleikurinn í knattspyrnu á milli UÍA og UMFK. Þeirra viðureign lauk með sigri UMFK 3:1 eins og áður heíúr komið fram. Mótsslit Strax að loknum knattspyrnu- leiknum fór fram verðlaunaaf- hending. Afhent voru þau verð- laun sem ekki var búið að afhenda áður svo og ýmis sérverðlaun. Þá var tilkynnt að HSK heíði sigrað stigakeppnina við mikinn fögnuð allra Skarphéðinsmanna, en þeir voru mjög sigursælir á þessu móti og héldu heim klyfjaðir verðlaun- um. Að lokum sleit Pálmi Gíslason 17. landsmótinu og gat þess að næsta mót yrði haldið í Keflavík ogNjarðvík 1984. Þar með var þessu vel heppn- aða móti lokið og er það mál manna að einstaklega vel hafi ver- ið staðið að því. Það má segja að stjórnendur og framkvæmdaaðil- ar hafi unnið stærsta afrekið á mótinu svo vel gekk þetta 17. landsmót UMFÍ í alla staði. S.P. kór Akureyrar söng, Þjóðdansafé- lagið sýndi dansa og sýningar- flokkurinn frá Hobro sýndi fim- leika svo eitthvað sé nefnt. A eftir var síðan stiginn dans á gólfi hall- arinnar eins og önnur kvöld landsmótsdagana. Hljómsveitin Upplyfting sá um að halda uppi fjörinu á þessum dansleikjum. Hátídarsamkoman A sunnudeginum rétt fyrir kl. 2 hófst hátíðarsamkoman í blíð- skaparveðri með því að Lúðra- sveit Akureyrar lék nokkur lög fyrir samkomugesti. Þá var helgi- stund og var það séra Pétur Sigur- geirsson vígslubiskup sem prédik- aði. Að henni lokinni setti móts- stjórinn Sveinn Jónsson frá Kálf- skinni samkomuna. Síðan flutti heiðursgesturinn Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrverandi ráð- herra hátíðarræðu. Ræddi hann um störf hreyfingarinnar og kom víða við. Samsýning barna úr Eyjafirði, Dalvík og nágrenni var næst á dagskrá. Þá kom skemmti- þáttur og fimleikasýningar, þar bar hæst sýningu danska fim- leikaflokksins frá Hobro, Dan- mörku. Auk þess var Þjóðdansafélag Reykjavíkur með vandaða dag- skrá. Þá kvaddi sér hljóðs Ludv. Jerdal frá Noregi og færði hann UMFI að gjöf bók, Vestmanna- laget i 110 ár, auk þess sem hann Hutti kveðjur frá félaginu. Pálmi Gíslason formaður UMFI heiðraði síðan tvo kepp- endur á mótinu, Þórodd Jóhanns- son form. landsmótsnefndar og Guðmund Hallgrímsson en þeir Danski fimleikaflokkurinn frá Hobro sýndi á mótinu við góðar undirtektir áhorfenda. Frá úrslitaleiknum á milli UÍA og UMFK í knattspymu. 14 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.