Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.08.1981, Side 32

Skinfaxi - 01.08.1981, Side 32
Þuríður Ingvarsdóttir, Guðrún Erla Gísladóttir og Hulda Jónsdóttir. Framkvæmdaraðilar og við höfum átt góða samvinnu, mótið gekk vel fyrir sig en þó hefði mátt vera meiri festa í einstökum grein- um t.d. í dómgæslu. ■A kvöldin gekk vel að halda saman hópnum allir komnir í ból og þögn komin á fyrir kl. 12. Aðal vandamálið var frá fólki í kring, því sem kom af dansleiknum og öðru óviðkomandi fólki. Keppni var hjá öllum nr. 1 síðan kom ann- að. Að lokum vildi Guðmundur bera fram þakklæti til allra bæði áhorfenda og keppenda, einnig til fólks heima í hcraði vegna undir- búnings og fjáröflunar en án þeirra hefði varla verið hægt að fara slíka glæsiför. Næst hittum við þrjár ungar stúlkur, þær Guðrúnu Erlu Gísla- dóttur og Þuríði Ingvarsdóttur frá Selfossi og Huldu Jónsdóttur frá Reykjavík en amma hennar á heima á Selfossi. Þær stöllur voru með HSK fólki, foreldrar eða systkini voru að keppa. Þegar þær voru spurðar hverjir væru bestir svöruðu þær einróma „HSK”, þeir væru lang bestir og þær ætl- uðu að keppa fyrir HSK einhvern tíma. Þá sögðu þær að HSK myndi vinna næsta mót. Það væri ofsa gaman á landsmótinu, ætl- uðu alltaf að halda með HSK og langar að fara á næsta landsmót líka, sögðu þær vinkonur að lok- um. ' Næst lá leiðin um Snæfellinga- búð, en það nafn báru tjaldbúðir HSH. Þar hittum við Magndísi Alexandersdóttur framkvæmda- stjóra HSH. — Ertu ánœgð að loknu móti? Já, mjög ánægð að loknu móti þó ekki hafi allt farið eins og mað- ur vildi helst. sumir stóðu sig ekki eins vel og búist var við en það er Magndís Alexandersdóttir framkv.- stjóri HSK. náttúrlega ekkert við því að gera. Framkvæmdin hefur tekist vel og aðstæður eru góðar. — Hvemig gekk að stjóma hópn- um? Þetta er í fyrsta skipti sem ég kynnist ábyrgð vegna landsmóts og gekk bara vel að stjórna liðinu. Eg hef kynnst krökkunum í sam- bandinu og hefur þetta verið sam- stilltur hópur sérstaklega eftir að við héldum smá kvöldvöku á laugardagskvöldið. Gerum okkur vonir um að þessi samstaða boði eitthvað gott fyrir sambandið í framtíðinni. Það má segja að við sem störfuðum við þetta værum of fáliðuð, betra bæði fyrir keppend- ur og allan hópinn ef fleiri störf- uðu við þetta þar sem keppni fer fram á svo mörgum stöðum í einu. — Hvað með að haja dansleiki svona stutl jrá? Æskilegt að keppendabúðir væru lengra frá höllirini en við því er ekkert að gera. Búðirnar heíðu þurft að fara út fyrir bæinn ef þær ættu að vera lengra frá höllinni og er það verri kostur heldur en að hafa þær hér. — Hejurðu eitthvað Jengið að soja? Já, já, fyrstu nóttina stóð ég á vakt en síðan fékk ég frí frá því. Að lokum sagði Magndís að framkvæmdastjóranámskeiðið sem haldið var í byrjun júní heíði virkað sem vítamínssprauta á hana og var allt annað að starfa eftir það. — Hvort húnsteiejtir timanum sem hún hejði lagt í undirbúning? Nei, alls ekki, hef halt mjög gaman að þessu, allavega svona eftir á. Að svo búnu kvöddum við Magndísi og héldum ferð okkar áfram um tjaldbúðirnar. 1 jöldum var farið að fækka, hið stóra tjald UMSK var nú horfið en eftir sat formaður þeirra Kjalnesinga, Kristján Sveinbjörnsson. Sest var 32 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.