Skinfaxi - 01.06.1984, Síða 3
SKINFAXI
3. tbl. - 75. árg. -1984
MKRIFTARVERÐ 350 kr. árgangurinn. • LAUSA-
SÓLUVERÐ: 65. kr. eintakið. • ÚTGEFANDI, Ung-
niennafélag fslands. • RITSTJÓRI, Ingólfur A.
Steindórsson. • RITNEFND, Jón G. Guðbjömsson,
Sergur Torfason. Guðjón Ingimundarson. • AF-
óREIÐSLA SKINFAXA, Skriistofa UMFÍ. Mjðlnisholtí
l4- Reykjavík. Simi 14317. • SETNING, UMBROT OG
^Ú-MUGERÐ, Prentþjónustan hf. • PRENTUN,
fTenlsmiðjan Rún sl.
Meöal
Framkvœmdastjóra-
úámskeið............... 5
Undirbúningur
Qengur vel............. 7
Frjálsiþróttaþjálfun.. ÍO
Prá Landsmótsneínd.... 14
^agskrá
Landsmóts UMFÍ..... 15
Skinfaxi kynnir
framkvœmdastjóra
héraðssambanda........ 16
Landsmótsspár........... 18
Forsíðumynd:
F'orsiðumyndin er tekin á Kópa-
v°9svelli aí Berglindi Erlends-
áóttur og Svanhildi Kristjónsdótt-
Ur úr UMSK. Svanhildi er spáð
si9ri í ÍOO m hlaupi og lang-
siökki á landsmótinu í ldnds-
úrótsspá í blaðinu.
SRINFAXI
Sigurbjörn Gunnarsson
Velkomin
a
18. Landsmót UMFL
Enn er komið að landsmóti. Að baki er mikill og fjöl-
þættur undirbúningur. Við sem að þessum undirbúningi
höfum unnið sjáum brátt árangur erfiðisins og við vonum
að sá árangur verði velheppnað mót með öflugri þátttöku
sem flestra ungmennafélaga.
Undirbúnigurinn hefur ekki einungis verið á vegum
ungmennafélaganna, UMFK og UMFN sem halda mótið
heldur hafa bæjarfélögin, Keflavík og Njarðvík staðið fyr-
ir miklum framkvæmdum til þess að landsmótið geti farið
sem best fram. Það er einmitt einn af helstu ávinningunum
við landsmótin að fyrir þau á sér stað mikil uppbygging
íþróttamannvirkja auk þess sem mikið er lagt i fegrun og
snyrtingu á þeim stöðum sem mótin eru haldin. Þessar
framkvæmdir nýtast að sjálfsögðu íbúum staðanna löngu
eftir að landsmótinu er lokið.
Annar mikilvægur ávinningur af landsmótunum er hin
félagslega og íþróttalega vakning sem á sér stað hjá ung-
mennafélögunum á landsmótsári. Aldrei er starfið meira
en einmitt þá og mótin eru fyrir löngu orðin að ákveðnu
marki sem ungmennafélögin miða sig við og stefna að.
Sú hugsun hefur oft skotið upp kollinum meðan á undir-
búningi fyrir þetta landsmót hefur staðið hvort mótin séu
orðin of stór og viðamikil. Vissulega eru mótin orðin um-
fangsmikil, keppnisgreinum hefur fjölgað og það er ekki
á færi nema hluta af sambandsaðilum UMFÍ að halda
mótin. Það verður því að varast að mótin vaxi hreyfing-
unni yfir höfuð. En jafnframt verður ungmennafélags-
hreyfingin að sjá til þess að landsmótin haldi þeim sessi að
vera stærstu og glæsilegustu æskulýðs og íþróttamót sem
haldin eru hér á landi. Að þessu höfum við Suðurnesja-
menn reynt að stefna í ár.
Verið velkomin á 18. Landsmóti UMFÍ.
Sigurbjörn Gunnarsson.
3