Skinfaxi - 01.06.1984, Qupperneq 5
Framkvœmdastjóra-
námskeiö.
Árlegt framkvæmdastjóra-
námskeið var haldið í Gagn-
fræðaskóla Keflavíkur dagana 8.
°g 9. júní s.l.
Sú hefð hefur skapast í seinni
tíð að námskeiðin hafa verið
haldin á landsmótsstað, þau ár
sem landsmót eru. Yfir 20 þátt-
takendur sóttu námskeiðið auk
leiðbeinenda. Sum sambönd og
félög sendu tvo þátttakendur og
var það þá annað hvort formaður
eða héraðsþjálfari sem mætti
nteð starfsmanninum. Á nám-
skeiðinu var farið yfir helstu störf
framkvæmdastjóra og þau verk-
efni sem hann þarf að leysa. Þá
yar seinni daginn farið ítarlega
yfir allt sem varðaði væntanlegt
landsmót, en starf flestra fram-
kvæmdastjóra kemur til með að
snúast mest um undirbúning fyrir
mótið fram að þeim tíma.
Námskeiðið þótti takast mjög
yel en leiðbeinendur á námskeið-
>nu voru Sigurður Geirdal, Helgi
Gunnarsson, Diðrik Haraldsson,
Skúli Oddsson og Sigurbjörn
Gunnarsson. Pálmi Gíslason for-
maður UMFÍ heilsaði upp á þátt-
takendur fyrri daginn.
Hafsteinn Þorvaldsson, fyrr-
verandi formaður UMFÍ, kom
seinni daginn og kynnti gönguna
a Landsmótinu fyrir þátttakend-
um. Einn liður í kynningunni á
'andsmótinu var að skoða lands-
mótssvæðið. Var farið gangandi
um allt svæðið og skoðuð öll þau
mannvirki sem notuð verða til
heppni á landsmótinu. Tók þessi
skoðunarferð 1 Vi klukkustund
°g sést á þvi að stutt er á milli
staða í Keflavík og Njarðvík, því
stoppað var dágóða stund á
hverjum stað. Var það mál manna
að líklega hefði aldrei verið hald-
ið landsmót við jafn glæsilegar
aðstæður og jafn góðan húsakost
og nú væri fyrir hendi fyrir lands-
mótið í sumar. IS
Frá framkvœmdastjórnanámskeiðinu. F.v. Stefán Már Guðmundsson UNÞ,
Hafsteinn Þorvalásson fyrrverandi formaöur UMFÍ, Síguröur Geirdal framkv.
stj. UMFÍ, Diörik Haraldsson stjórnarmaöur UMFÍ og Skúli Oddsson fram-
kvœmdastjóri UÍA.
Á leiö um landsmótssvœöiö. Páll Sigurösson formaöur USVH, Jóhann Geirdal
formaöur UMFK, Þórhallur Guöjónsson formaöur Landsmótsnefndar, Stefán
Már Guömundsson framkvœmdastj. UNÞ, Þröstur Óskarsson starfsmaöur
UMSK, Gunnar Jónsson framkvæmdastj. UMFK og Siguröur Geirdal fram-
kvœmdastjóri UMFÍ.
Si<UNFAXI 5