Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.06.1984, Qupperneq 18

Skinfaxi - 01.06.1984, Qupperneq 18
Landsmótsspá — Landsmótsspá Jon Sœvar Þórðarson. Landsmótsspá í írjálsum íþróttum Fyrir rúmum mánuði síðan bað ritstjóri Skinfaxa mig um að skrifa landsmótsspá í frjálsum íþróttum. Ég varð við þeirri beiðni því ég tel mig ekki minni spámann en hvern annan og sæmilega i stakk búinn til að sinna þessu verkefni. Ég hef dreg- ið spána nokkuð á langinn með vilja til að betra sé að átta sig á hverjir keppa á mótinu og í hvern- ig formi þeir eru. Enn er ekki út- séð með hverjir verði valdir til keppni á OL, en ég ætla að gera ráð fyrir að Vésteinn, Einar og Egill Eiösson íris verði þeirra á meðal. Reyndar er þegar búið að velja Einar og Véstein, en íris er volg að mínu mati. Verður ekki gert ráð fyrir þeim í landsmótsspánni. Mæti þau hins vegar, sigra þau sínar að- algreinar og verði í verðlaunasæti í öðrum. Ef við lítum fyrst á samböndin sem til álita koma sem stigahæsta samband, koma þrjú fyrst upp í hugann þau eru: HSK, UMSK og UÍA. Einnig má nefna UMSE, UMSB og UMSS. Þessi sambönd verða í 6. efstu sætunum. HSK J6n Diöriksson hefur titil að verja og verða erfiðir viðureignar. Vésteinn keppir ekki, en Þráinn bróðir hans er aftur kominn í sitt gamla félag og styrkir það mikið. Sigríður Kjartansdóttir mun keppa fyrir HSK og þeim veitir svo sannar- lega ekki af spretthlaupurum. Ólafur Óskarsson hefur séð um þjálfun stórs hluta HSK liðsins (Selfoss) í vetur. Auk hans mun Kári Jónsson þrístökkvari þjálfa liðið i sumar. Mikil endurnýjun á sér stað í UMSK liðinu. Stórefnilegir Helgi Þór Helgason 18 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.