Skinfaxi - 01.06.1984, Qupperneq 19
Landsmótsspá — Landsmótsspá
hlauparar og stökkvarar eru að
koma fram undir öruggri stjórn
hins snjalla þjálfara Ólafs Unn-
steinssonar sem virðist geta töfr-
að hvern toppmanninn á fætur
öðrum fram úr erminni.
Lið UÍA er í framför og er til
alls líklegt. Þar ræður ríkjum og
stjórnar af skörungskap og festu
járnfrúin Helga Alfreðsdóttir. Ég
reikna með að Hreinn Halldórs-
son hafi hönd í bagga með þjálf-
un kastaranna.
UMSE hefur fengið mikinn liðs-
styrk. Má þar nefna Aðalstein
Bernharðsson sem ekki keppti á
síðasta landsmóti, Cees, sem
einnig þjálfar liðið, Valdísi, Krist-
ínu Halldórsdóttur o.fl. Ef mínir
gömlu félagar ná að tjalda því
sem til er gætu þeir orðir ískyggi-
lega öflugir.
UMSS er samband í framför.
Þjálfari þeirra er Guðmundur
(Borg) Sigurðsson og styrkir
hann Iiðið mikið bæði sem kepp-
andi og þjálfari.
UMSB kemur mér fyrir sjónir
í’róinn Hafsteinsson
sem staðnað samband, en ég vona
að mér skjátlist. Hins ber að geta
að í UMSB eru Einar Vilhjálms,
íris Grönfeldt og Jón Diðriksson
sem gætu hugsanlega öll verið
meðal keppenda á OL. Mér er
ekki kunnugt um hver þjálfar
UMSB liðið að þessu sinni.
Karlagreinar
Hlaup
Um hlaupin er erfiðast að spá.
Breiddin er lítil milli landsmóta,
en virðist aukast að mun lands-
mótsárið. Ég spái aðeins um 3
efstu sætin í hverri grein, en læt
stundum fleiri nöfn fylgja á eftir
sem ég tel að geti blandað sér í
baráttuna.
Ég spái:
100 m hlaup
1. Egill Eiðsson UÍA
2. Cees Van de Ven UMSE
3. Erlingur Jóhannsson UMSK
Kristján Hreinsson
Aðalsteinn Bernharðss.UMSE
Einar Gunnarsson UMSK
Guðni Sigurjónsson UMSK
400 m hlaup
Opin grein þar sem nokkrir
gætu hlaupið undir landsmóts-
meti.
1. Aðalsteinn Bernharðss. UMSE
2. Egill Eiðsson UÍA
3. Erlingur Jóhannsson UMSK
Einar Gunnarsson UMSK
Ólafur Óskarsson HSK
Bjarni Svavarsson UMSK
800 m hlaup
Millivegalengdahlaupin verða
skemmtileg ef þeir félagar Jón og
Brynjúlfur mæta til leiks annars
ekki.
1. Jón Diðriksson UMSB
2. Brynjúlfur HilmarssonUÍA
3. Bóas Jónsson UÍA
Bjarki Haraldsson USVH
Einar Ingvarsson HVÍ
Ingi K. Jónsson HSK
GuömundurSigurösson
SKINFAXI
19