Skinfaxi - 01.06.1984, Side 22
Frjálsíþróttaþjálfun.
Þriöji þáttur
Helga Ruth
Alíreðsdóttir
IV. áfangi. Grunntœkni
og undirbúningur
aö fyrstu keppni.
Ef þið hafið fylgt æfingum síð-
ustu þátta í Skinfaxa, er nú kom-
inn tími til að íhuga tæknileg at-
riði og ykkar fyrstu keppni. Víða
um landið standa ungmennafé-
lögin fyrir æfingum í frjálsum
íþróttum. Gott væri ef þið gætuð
æft einu sinni eða tvisvar í viku á
nærliggjandi íþróttavelli. Þá daga
sem það er ekki hægt æfið þið líkt
og greint var frá í síðasta þætti, að
viðbættum æfingum sem koma
fyrir í þessum pistli. Æfingatafl-
an gæti verið sem hér segir:
Hlaup
1. Spretthlaup:
Keppni fer fram á afmörkuð-
um brautum (ca. 1,22 m br.).
Keppandi má ekki yfirgefa sína
braut fyrr en hlaupi er lokið. Hér
Æfingaáætlun:
1. æfing:
(íþróttavöllur)
spretthlaup
langstökk
kúluvarp
2. æfing
(heima)
hástökk
spjótkast
hringþjálfun
3. æfing
(heima)
spretthlaup
langstökk
kúluvarp
4. æfing
(íþróttavöllur)
hástökk
spjótkast
800 metrar
á landi hlaupa börn yngri en 12
ára 50 eða 60 m og þau eldri 60
eða 100 m. Til að ná góðu við-
bragði notum við startklossa.
Klossinn fyrir fremri fótinn hall-
ar um 45 gráður og við setjum
hann eitt og hálft til tvö fet aftan
við viðbragðslínuna. Klossinn
fyrir aftari fótinn er brattari ca.
70 gráðu halli, við setjum hann
feti aftar en fremri klossann. Sjá
mynd 1.
a) start: Fyrirskipanir ræsis
eru: „Takið ykkur stöðu” og „við-
búin”. Þegar allir keppendur eru
kyrrir er hleypt af byssunni. Þeg-
ar ræsir segir, „takið ykkur
stöðu”, stígið þið fram fyrir kloss-.
ana. Krjúpið og setjið hendurnar
á hlaupabrautina. Færið nú fæt-
±
„Viöbúnir”
„Skot”
10
SKINFAXI