Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1984, Síða 23

Skinfaxi - 01.06.1984, Síða 23
urna á klossana, hné aftari fótar- ins á að snerta jörð. Setjið hendur > axlabreidd fyrir aftan línuna. Sjá mynd 2 a-d. Handleggirnir eru beinir og þyngd ykkar hvílir á höndum og fótum bakið er að- eins bogið og þið horfið niður á startlínuna. í þessari stöðu bíðið þið rógfeg. Við merkið „viðbúin” lyftið þið hné aftari fótarins frá jörðu, við það færist mjöðmin örlítið upp fyrir öxlina. Þyngd líkamans færist meir á handlegg- >na, höfuðstaða er óbreytt (mynd 2 e). í þessari stöðu bíðið þið ein- beitt eftir skotinu. Við hvellinn losið þið hendur frá jörðu og spyrnið fast í klossana. Spyrna aftari fótarins verður að vera mjög snögg til þess að þið getið framkvæmt sem fljótast fyrsta skrefið. Réttið strax úr fremri fæt- inum það flýtir ykkur fram á við. Sveiflur handleggja þurfa að komast sem fljótast í takt við hreyfingar fótanna. (mynd 2-9). b) hröðun: Fyrst eftir startið hall- ið þið ykkur töluvert fram. Þessi halli minnkar smám saman og skrefin verða lengri. Eftir 20 til 30 m eruð þið búin að ná ykkar há- markshraða. Honum haldið þið fram yfir marklínu og passið að horfa hvorki til hægri né vinstri. Á æfingum og í keppni hitið þið vel upp, t.d. með því að skokka tvo til fjóra hringi á vellin- »m eftir hita og veðurfari. Gerið teygju og liðkandi æfingar og hlaupið nokkur stutt hlaup með vaxandi hraða. Lagið startkloss- ana og startið nokkrum sinnum. Slakið síðan á og beinið huganum að hlaupinu. skinfaxi viðbragðslína 2. Langhlaup: í lengri haupum 600—800 m skiptir startið sjálft ekki eins miklu máli og í spretthlaupum. Keppendur safnast á fylkingar- línu, sem er bogadregin. Við fyr- irskipun ræsisins, „takið ykkur stöðu” færa keppendur sig fram á viðbragðslínu. Startað er stand- andi úr skrefstöðu (mynd 3 a). Strax eftir startið þurfið þið að koma ykkur á góðan stað í kepp- endahópnum. (á innstu braut). Sjá mynd 3. Til að byrja með er best að fylgja fremstu hlaupurun- um, eftir getu ykkar en hafa í huga: a) að hlaupa sem mest á innstu braut. b) að fara aðeins framúr keppendum á beinu brautinni, ekki í byrjun. c) að hlusta á hina hlauparana en líta ekki til baka. d) að halda enda- sprettinn í mark. Eftir hlaupið skokkið þið hægt og teygið vel. Stökk 1. Langstökk: í langstökkskeppni stökkva þeir sem eru 14 ára og yngri af upp- stökkssvæði (1 m. br.) en þau eldri af planka (20 cm.) Tilhlaupið er venjulega 15—19 hlaupaskref, sem samsvarar ca. 30—38 göngu- skref og fyrsta skrefið er alltaf tekið með stökkfætinum. Mælið ykkar aðhlaup heima t.d. 30 gönguskref. Hlaupið vel með vax- andi hraða að og stökkvið. End- urtekið þetta sex til átta sinnum með góðum hvíldum á milli þar til að þið stökkvið alltaf upp á sama stað. Þá mælið þið tilhlaup- ið til baka í fetum, þetta tilhlaup notið þið svo í keppni, stundum þarf þó að breyta tilhlaupinu um 1—2 fet vegna breyttra aðstæðna. Góð langstökkstækni fyrir byrjendur er skrefstökk. Sjá mynd 4. Eftir gott tilhlaup með vaxandi hraða réttið þið efri bol- inn upp í síðustu skrefunum án þess að hægja á ykkur. Stökkvið þá mjög kröftuglega upp með hjálp handleggja og sveiflufóts. Þessari stöðu haldið þið augna- blik og teygið svo báða fætur fram til lendingar, hnén gefa vel eftir og handleggirnir sveiflast fram til að tryggja að þið dettið ekki afturfyrir ykkur. Best er að lenda jafnfætis. 2. Hástökk: Vinsælasti hástökksstíllinn um þessar mundir er svokallaður „flopp” eða fettustíll. Til að hægt halda skrefið lenda 11

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.