Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1984, Page 26

Skinfaxi - 01.06.1984, Page 26
4- Landsmótsspá — Landsmótsspá Gunnar Árnason. Blaká Landsmóti 1984 8 Héraðssambönd hafa til- kynnt þátttöku í blakkeppni 18. Landsmótsins. Þau eru: UMSE, HSÞ, UNÞ, UÍA, USVS, HSK, UMFK og UMSK. UMSE vann öruggan sigur á 17. Landsmótinu á Akureyri 1981 en liðið hefur breyst all mikið síð- an og er nú að mestu skipað leik- mönnum hins sameiginlega liðs Reynis og Dalvíkinga sem vann sigur í 2. deild íslandsmótsins í blaki siðastliðinn vetur. Undirrit- aður hefur ekki séð liðið leika en þekktustu kappar liðsins eru þjálfarinn Halldór Jónsson, gamalreyndur landsliðsmaður, Stefán Jóhannesson og Hjalti Halldórsson sem báðir hafa leik- ið með unglingalandsliði. HSÞ ætti ekki að vera í vand- ræðum með að ná saman liði sem verður í baráttunni um sæti í efri hlutanum, þrátt fyrir að ekkert lið úr Suður-Þingeyjarsýslu tæki þátt i íslandsmóti meistaraflokks karla 1984. Líklega verður uppi- staða liðsins úr hópnum sem lék í 1. deild með Bjarma 1983. HSÞ varð í 3. sæti 1981. UNÞ náði 6. sæti á Akureyri 1981 eftir sætan sigur á USVS og nú er stefnan að halda því a.m.k. í liðinu eru ungir og efnilegir strákar auk annarra reyndari svo sem bræðranna Daníels og Gylfa Árnasona sem tóku þátt í deilda- keppninni fyrir nokkrum árum. UÍA liðið verður skipað leik- mönnum Þróttar Nes. sem urðu í 4. sæti í íslandsmóti 2. deildar í vetur. Þar eru fremstir í flokki hinir gamalreyndu Ólafur Sigurðsson og Grímur Magnús- son sem hafa alið upp hóp ungra og mjög efnilegra stáka. Þróttur Nes. sigraði í íslandsmóti 3. flokks karla og varð í 3. sæti í 2. flokki. TVeir ungu mannanna léku í unglingalandsliði í apríl og Marteinn Guðgeirsson hefur ver- ið valinn í landsliðshóp karla fyr- ir Norðurlandamót í október. UÍA varð í 5. sæti á Akureyri. USVS varð í neðsta sæti á Akureyri og verður að öllum lík- indum í neðri hlutanum nú. í lið- inu eru fáir þekktir blakmenn svo vitað sé, en Guðni Einarsson er þó traustur. HSK verður aðallega skipað leikmönnum úr Samhygð en e.t.v. bætast einhverjir í hópinn. Þekktastir eru Torfi Rúnar Krist- jánsson sem lék 7 fyrstu lands- leiki Islands og bræðurnir Eggert, Pétur og Andrés Guð- mundssynir en sá síðasttaldi hef- ur leikið með unglingalandsliði. Samhygð varð í 3. sæti 2. deildar íslandsmótsins, en HSK varð í 2. sæti á Akureyri 1981. UMFK er óreynt keppnislið og hefur aðeins tekið þátt í einu móti á vegum B.L.I. (Haustmóti 1983) og ekki er búist við að liðið nái langt á sínu fyrsta Landsmóti. UMSK hefur innan sinna raða marga góða blakmenn en liðið verður væntanlega að mestu skip- að leikmönnum HK sem urðu í 2. sæti 1. deildar íslandsmótsins í vetur. Þeirra þekktastir eru Iands- liðsmennirnir Haraldur Geir Hlöðversson, Samúel Örn Erlingsson, Páll Ólafsson, Hreinn Þorkelsson, Benedikt Höskuldsson svo og formaður Blaksambandsins Skjöldur Vatn- ar Björnsson. Auk þess eru nokkrir unglingalandsliðsmenn í hópnum. UMSK varð í 5. sæti á 17. Landsmótinu en ætti að vera nokkuð öruggt með sigur í Kefla- vík. Eins og áður segir ætti UMSK 26 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.