Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1986, Page 5

Skinfaxi - 01.10.1986, Page 5
Illllllll Islenskar getraunir flytja í eigið húsnæði Texti og myndir: Guðmundur Gíslason Jón Ármann Héðinsson stjómarformaður íslenskra getrauna býður gesti velkomna. Hér sést inn í eina skrifstofuna. Nú í haust fluttu íslenskar getraunir í eigið húsnæði sem er í íþróttamiðstöðinni Laugardal í húsi 2 á annarri hæð. Þetta húsnæði var áður í eigu ÍBR en íslenskar getraunir festu kaup á því í nóvember á síðasta ári. Búið að gera húsnæðið mjög skemmti- lega úr garði bæði fyrir starfsfólk og viðskiptavini og eru sérstök borð og stólar í afgreiðslu fyrir viðskiptavinina þar sem þeir geta fyllt út seðla sína. Hér ræðast þeir við Hafsteinn Þorvaldsson og Hannes Þ. Sigurðsson Gestir spjalla saman og þiggja ávaxtadrykk í tilefni þessara tímamóta hjá ísl. getr. Samfara þessu nýja húsnæði þá hafa ýmsar nýjungar verið innleiddar í starf- semina eins og t.d. að nú geta menn hringt og keypt seðla með því aðeins að gefa upp númerið á greiðslukortinu sínu, og sagt hvað margar raðir þeir vilja kaupa og hvernig á að fylla opnu kerfisseðlana út. Þessi nýja þjón- usta á örugglega eftir að mælast vel fyrir hjá viðskiptavinum íslenskra getrauna. Hér á síðunni eru nokkrar myndir sem teknar voru er nýja húsnæðið var formlega tekið í notkun. Hér sést vel hvað þetta nýja húsnæði er rúmgott og smekklegt. Skinfaxi 5. tbl. 1986

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.