Skinfaxi - 01.10.1986, Blaðsíða 23
Landsmótsfréttir
Texti: Guðmundur Gíslason Myndir: Skinfaxi
Allur undirbúningur fyrir mótið
gengur mjög vel bæð hvað varðar
alla aðstöðu og framkvæmd
einstakra þátta. Eins og kemur
fram á öðrum stað hér á síðunni
er búið að ráða framkvæmda-
stjóra.
Framhafakomið margar skemmti-
legar hugmyndir um dagskrá og
framkvæmd mótsins og má þar
t.d. nefna útvarpsstöð. En
hugmundin er að reka staða-
rútvarp á meðan á landsmótinu
stendur og útvarpa þá úrslitum,
fréttum og einhverju skemmti-
efni. Þetta mun örugglega setja
skemmtilegan svip á mótið og
auðvelda mótshöldurum að koma
upplýsingum á framfæri, jafn-
framt munu hinar föstu Lands-
mótsfréttir koma út eins og
venjulega.
Þá hefur verið rætt um að sigla
víkingaskipi þeirra Húsvíkinga á
nokkrar hafnir til að kynna
landsmótið og vekja athygli á
því. Við munum segja nánar frá
þessari hugmynd þegar hún
hefur verið fullmótuð.
Tölvur munu verða mikið notaðar
við alla framkvæmd íþróttake-
ppninnar á mótinu og er ætlunin
að sýna úrslit og stöður á stórum
skjá við völlinn og jafnvel víðar.
íþróttahúsið mun verða komið í
stand fyrir mótið en framkvæmdir
við það ganga mjög vel og eru
jafnvel á undan áætlun.
Eins og áður hefur verið greint
frá verður reist bráðabrigða sund-
laug við hliðina á nýja íþrótta-
húsinu og verður hún tilbúin á
tilsettum tíma.
Hér hefur aðeins verið sagt frá
litlum hluta þess undirbúnings og
hugmynda sem eru í athugun hjá
þeim HSÞ-mönnum, en við
munum segja nánar frá landsmót-
inu eftir því sem hlutirnir gerast.
Hluti landsmótsnefndur á fundi með sjórn UMFÍkvöldið fyrir 25. Sambandsráðs-
fund UMFÍ sem haidinn var á Hótel Húsavík 15. nóv. 1986.
Framkvæmda
Landsmótsins
Nú nýlega var Guðni Hall-
dórsson ráðinn sem fram-
kvæmdastjóri 19. Lands-
móts UMFÍ sem verður á
Húsavík næsta sumar, og
mun hann taka til starfa
um áramótin.
Það ætti að vera óþarft að
kynna Guðna fyrir ung-
mennafélögum því hann
hefur starfað mikið og
lengi innan hreyfingar-
innar, bæði sem forystu-
maður og keppnismaður í
íþróttum. Hann hefur
verið formaður og fram-
kvæmdastjóri FRÍ tvö
síðustu ár og hefur því
mikla reynslu sem mun
nýtast honum við fram-
kvæmdastjórn landsmóts-
ins.
Skinfaxi býður Guðna vei-
kominn til starfa og óskar
honum og þeim HSÞ
mönnum alls hins besta
við framkvæmd lands-
mótsins.
Skin faxi 5. tbl. 1986
23