Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1986, Síða 9

Skinfaxi - 01.10.1986, Síða 9
”Þá fór allt "Það varmikið” Þetta vom fyrstu orð Leifs Harðarssonar blakmanns er ég fórþess á leit við hann að fá viðtal í Skinfaxa. Þeir eru nú sennilega ekki margir sem stunda blak á íslandi sem kannast ekki við Leif. Hann er búinn að stunda blak / rúmlega 10 ár og hefur á þessum árum m.a. unnið íslandsmeistaratitilinn 9 sinnum. Leifur þykir líka nokkuð liðtækur knattspymumaður og enn liðtækari sem skemmtikraftur, þannig að það mætti ætla að hann hefði frá mörgu skemmtilegu að segja. Til þess að komast að því hvort hann væri eins skemmtilegur og fjölhæfur og hann vill meina, ræddi ég stuttlega við hann um daginn. Segðu mér Leifur ertu fæddur og uppalinn héma á mölinni íReykjavík? - Nei! Ég er fæddur á Hólmavík, en fór nú reyndar bara þangað til að fæðast. Eftir að því var lokið var ég hér í Reykjavík til sex ára aldurs en þá fluttist ég að Gufuskálum á Snæfells- nesi og var þar til 12 ára aldurs. Þá fluttum við til Reykjavíkur og hef verið hér síðan með smá útúrdúrum annað slagið. Hvar og hvenær byrjarðu að stunda íþróttir? - Það var þegar við bjuggum á Gufuskálum, að ég fór að iðka íþróttir með Umf. Reyni á Hellissandi. Það var aðallega stunduð knattspyma, þó man ég eftir að einu sinni kom Einar Gíslason spretthlaupari og kenndi frjálsar íþróttir, en það höfðaði nú ekki mikið til mín. Við kepptum í yngri flokkunum við lið frá Ólafsvík, Stykkishólmi og Grundarfirði. Nei ég var ekkert í sundi, því ég var svo déskoti vatnshræddur. Svo 1969 fluttum við aftur dl Reykjavíkur og kom ekkert annað til greina en að ég færi í Val þar sem pabbi var gamall Valsari. En þar sem ég fór í Vogaskóla fór það nú þannig að ég gekk í Þrótt en ekki Val og hef verið þar síðan. Varstu þá bara íknattspymunni? Já! Handbolti var nú ekki sérstaklega hentug íþrótt fyrir mig. Ég var með Þrótti upp alla flokka og lék meira segja allar stöður á vellinum. En ég hef spilað mest sem miðjumaður, þó ég hafi verið settur í hinar og þessar stöður ef svo bar undir. Hvers vegna ferðu að æfa blak? - Það var nú dálítið furðulegur aðdragandi að því öllu saman. Þegar ég var í 10. bekk í Vogaskóla voru nokkrar valgreinar eins og vélritun, Enska I, keramik og alls konar svoleiðis fokk. Þá var líka hægt að velja grein ef 10 eða fleiri vildu það og ef einhver kennari gæti kennt hana. Þannig að við töluðum nokkrir við Guðmund Arnaldsson um það hvort hann vildi taka að sér að kenna okkur blak, og var hann til í það, og svoleiðis byrjaði þetta. Við æfðum svo tvisvar í viku og unnum skólamótið í blaki. Á sama tíma eru þeir að koma frá námi á ÍKÍ Guðmundur Pálsson (Fommi), Gunnar Árna, Valdimar og fleiri. Þeir leita fyrir sér með að stofna blakdeild hjá einhverju félagi hérna í Reykjavík og fóru m.a. til Vals og KR en þau félög voni ekki til í það. En á endanum stofnuðu þeir svo blakdeild Þróttar og Skinfaxi 5. tbl. 1986 9

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.