Skinfaxi - 01.02.1999, Blaðsíða 10
Myndarlegt stökkmót
Það þurfti ýmsu að breyta í íþróttahöllinni á
Akureyri svo að mótið gæti farið fram.
Jón Arnar náði ekki að sigra Erki Nool í
stönginni á „heimavelli" sínum.
Fyrrum fimleikastelpan, Þórey Edda, hefur
sýnt miklar framfarir í stönginni og er nú
komin í hóp þeirra bestu í heiminum.
Ungmennafélagið Reynir á
Árskógsströnd hélt á dögunum
glæsilegt frjálsíþróttamót sem
hlaut nafnið stökkmót Reynis.
Á mótinu kepptu flestir okkar
fremstu frjálsíþróttakappa og
nægir þar að nefna Jón Arnar
Magnússon, Völu Flosadóttur,
Þóreyju Eddu Elísdóttur og
Einar Karl Hjartarson. Mótið
var til mikillar fyrirmyndar og
Jóhann Ingi Árnason fór norður
og smellti myndum af því
helsta.
Framkvæmdastjori
UMFÍ, Sæmundur
Runólfsson, og
framkvæmdastjóri
mótsins, Jón Sævar, sáu
til þess að stangir
keppenda kæmust frá
Reykjavík til Akureyrar.