Skinfaxi - 01.02.2000, Page 14
Á síðasta ári var
salan í Lengjunni
meiri en á ítalska- og
enska seðlinum til
samans. ívetur
hefur þetta breyst.
- Hvaða breytingar telur þú að þessi samruni
við Islenska getspá muni hafa fyrir starfsemi
íslenskra getrauna?
„I gegnum árin hefur samstarfið á milli getrauna
og getspár verið lítið sem ekkert og það er hlutur
sem ég tel að muni eflast mjög mikið í framtíðinni.
Það eru að stærstum hluta sömu eignaraðilarnir
að þessum fyrirtækjum og því hlýtur það að vera
vilji þeirra að bæði þessi fyrirtæki stækki og
eflist."
- Nú hafið þið notað sama sölukerfið í mörg
ár. Er það kannski það eina sem fyrirtækin
hafa haft samvinnu með?
„Já, og samt ekki nema að hluta til þar sem íslensk
getspá á í rauninni sölukerfið og Getraunir kaupa
svo þjónustuna af þeim og hafa gert það alla tíð.
Það verður reyndar engin breyting þar á á
næstunni. Þetta eru enn tvö fyrirtæki með tvær
kennitölur og rekin sem slík. Samruninn mun
hins vegar koma í ljós með aukinni samvinnu og
jafnvel átökum
100
lljónir í
hverri viku
Það var um síðustu áramót sem
íslenskar getraunir fluttu
starfsemi sína yfir til íslenskrar
getspá. Ástæðan fyrir þessum
flutningum var sú að reyna átti
að auka samstarf þessara
tveggja fyrirtækja sem að
stærstu eru í eigu sömu aðila.
Við samrunan tók Haraldur
Haraldsson við sölu- og
markaðstjórn íslenskra getrauna
og eitt af markmiðum hans í
sínu nýja starfi er að auka sölu á
enska seðlinum þar sem spilað
er um 100 milljónir í hverri viku.
Blaðamaður Skinfaxa settist
niður með Haraldi og spurði
hann út í nýja samstarfið og
framtíðina hjá getraunum.
sem fyrirtækin munu standa að saman."
- Ykkar sölukerfi hefur hins vegar ekki
einungis verið í gegnum þessa svo kölluðu
lottókassa. Þið hafið verið mjög duglegir við
að selja í gegnum internetið, er ekki svo?
„ Við höfum notað internetið mikið og það er mjög
þægileg og einföld leið fyrir okkur og viðskipta-
vini okkar. Þá er bara hægt að sitja rólegur heima
og spá í hlutina og tippa á hvaða tíma
sólarhringsins sem er. I dag fer um 40% af
heildarsölu okkar í gegnum internetið og yfir 50%
af sölu í enska og ítalska seðlinum. Við erum hins
vegar með tæpa 30% sölu á Lengjunni í gegnum
Netið."
- Sigurður Baldursson hafði verið Iengi í
brúnni hjá íslenskum getraunum áður en
kom að samruna fyrirtæksins við íslenska
getspá. Hann ákvað þá að snúa sér að öðru
og við það má segja að þú hafir sest í hans
stól. Munu einhverjar breytingar fylgja
nýjum manni?