Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2000, Blaðsíða 23

Skinfaxi - 01.02.2000, Blaðsíða 23
 2 s 4. unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Tálknafirði og í Vesturbyggð 4. - 6. ágúst í sumar. Vegna þess að mótið verður um verslunarmannahelgi þá verður það með öðru sniði en undanfarin mót. Hugmyndin er að vera með sambland af íþróttamóti og útihátíð. íþróttakeppnin verður með líku sniði og á fyrri mótum en við bætist hefðbundin útihátíðadagskrá. 4.-6. g st ri 2000 Vesturbygg V T Iknafir i Mótið verður eins og áður er getið á Tálknafirði og í Vesturbyggð. A milli þessara byggðarlaga er ekki nema 15 mínútna akstur á bundnu slitlagi. Aðal mótssvæðið verður á Tálknafirði. Þar verða tjaldbúðirnar og önnur dagskrá fyrir utan íþróttakeppnina sem dreifist á þrjá staði; Bíldudaf Patreksfjörð og Tálknafjörð. A Tálknafirði er nýleg 25m útisundlaug með heitum pottum og öll aðstaða til fyrirmyndar. Þar er einnig nýr grasvöllur og nýlegt íþróttahús. Keppni í sundi, knattspyrnu og körfubolta verður þar. Tjaldbúðirnar fyrir keppendur verða við hlið sundlaugarinnar en tjaldbúðir fyrir foreldra og aðra gesti verða í botni Tálknafjarðar, ca. 3 km frá keppendabúðunum. Frítt verður inn á mótssvæðið en keppendur borga þátttökugjald. verða þarna ýmis leiktæki og þrautir á mótssvæðinu þar sem hægt verður að dunda sér á milli keppnisgreina og eftir keppni. Settur verður upp 10 brauta skotbakki þar sem gefst tækifæri á að læra að skjóta af alvöru keppnisbogum. Vanir leiðbeinendur munu leiðbeina og sjá til þess að allir læri réttu tökin. Einnig verður keppt í nýrri íþróttagrein sem er hafnabolti. Verið er að dreifa hafnaboltakylfum í alla grunnskóla landsins ásamt reglum leiksins þannig að allir sem vilja eiga að geta kynnt sér þennan leik. Hugmyndin er að samböndin sendi inn lið og veittar verða viðurkenningar fyrir árangur, bestu stuðningsmenn og skemmtilegustu liðsbúningana. Hægt verður að nálgast reglur leiksins og aðrar fréttir á heimasíðu mótsins sem er snerpa.is/landsmot Á Patreksfirði verður keppt í golfi en þar er mjög skemmtielgur 9 holu golfvöllur. Þar verður einnig keppt í knattspyrnu á nýjum Samhliða mótinu verður alþjóðlegt stangarstökksmót. Vala Flosadóttir sem ólst upp á Bíldudal mun mæta og keppa við valinkunnar stjörnur. Þetta kemur til með að vera einn af hápunktum mótsins og hugsanlegt að einhver met falli. Samstarf hefur tekist með ferðamálafólki á svæðinu og verður margt í boði sem ekki tilheyrir beint mótinu. I nágrenninu er margir af fegurstu stöðum landsins eins og t.d. Látrabjarg og Fjallfoss og er tilvalið að nota tækifærið í leiðinni og skoða einstæða náttúru Vestfjarða. Þar sem þetta er eins konar tilraun að vera með landsmót um verslunarmannahelgi þá er mjög mikilvægt að þetta takist vel þannig að áframhald verði á. Það væri gaman ef við í ungmennafélagshreyfingunni gætum með þessu móti breytt þeirri hefð sem rikt hefur á útihátíðum um verslunarmannahelgi þar sem allt annað en uppbyggilegt starf er í gangi. grasvelli sem verður vígður fyrir mótið. Einnig fer keppni í skák og glímu fram þar. Á Bíldudal verður keppt í frjálsum íþróttum og golfi. Frjálsíþróttavöllurinn er nýuppgerður 4 brauta hringur en 6 beinar brautir. Gerviefni er á langstökks og hástökkssvæði. Golfvöllurinn er 9 holu völlur sem er í einkar skemmtilegu landslagi. Þar sem mótið verður haldið um verslunarmannahelgi þá verður ýmislegt í boði fyrir utan hina hefðbundnu íþróttakeppni. Þar sem keppnin dreifist á þessa þrjá staði þá verður erfitt fyrir gesti og aðra að fylgjast með hvað er að gerast og hvað er fram undan. Þetta ætla mótshaldarar að leysa með því að vera með útvarpsstöð sem næst á öllu mótssvæðinu. Þessi stöð verður rekin og henni stjórnað af ungu fólki og kærkomið verkefni fyrir þau sem ekki hafa áhuga á þátttöku í íþróttum. Dansleikur og tónleikar verða í risatjaldi og hefur verið ráðin hljómsveit sem sjá mun um að halda uppi fjöri alla dagana. Einnig Mótshaldarar ætla að leggja metnað sinn í að þessi hátíð verði sem veglegust og hafa lagt mikla vinnu í undirbúning. Til þess að allt gangi upp þá skorum við á alla ungmennafélaga að mæta á landsmótið og þá sérstaklega foreldra að koma með börnum sínum því það er öruggt að enginn verður svikinn af því. Valdimar Gwmarsson

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.