Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2000, Blaðsíða 34

Skinfaxi - 01.02.2000, Blaðsíða 34
lokaorð Björn B. Jónsson, varaformaöur UMFÍ HVAÐ ER SVONA MERKILEGT Vlð ÞAÐ...? Hvað er svona merkilegt við það að vera ungmennafélagi? Er það nokkuð öðruvísi að vera í ungmennafélagi en í óbreyttu íþróttafélagi? Svari hver fyrir sig. Ég ætla að svara fyrir mig, að hluta. Ef þú ert í ungmennafélagi sem er virkt og sinnir sínu hlutverki rétt, þá er víst að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Sumir kjósa að vera í íþróttum, aðrir vilja stunda félagsmálastarf, enn aðrir vilja vinna að menningarmálum eins og leiklist og svo eru þeir sem vilja sinna umhverfismálunum. Tókuð þið eftir! "Að sinna umhverfismálum". Sumir svara því til að þeirra félag sé eingöngu íþróttafélag og eigi þar af leiðandi ekki að vera í umhverfismálunum". Þetta er mergur málsins og nákvæmlega það sem ég ætla að koma að nánar í þessari grein. Því hefur verið haldið fram að það sé ekki í takt við tímann að láta unglinga sem stunda íþróttir vera að auki í öðrum verkefnum í félaginu. Ég spyr. Eru ekki gerðar sömu kröfur til unga fólksins og annarra þjóðfélagsþegna þessa lands? Það er skylda okkar 1. Hvernig er það með krakka sem koma á íþróttaæfingar? Eru þau keyrð hvert og eitt? Er ekki raunhæft að sameina í bílana eða láta þau hjóla eða ganga? Komum því inn hjá bömunum að það sé eðlilegt að þau hjóli eða gangi? Pannig spörum við orku og mengum minna út í andrúmsloftið og spörum þar að auki peninga fyrir okkur sjálf 2. Er sápan sem krakkarnir nota óholl fyrir líkamann og spillir umhverfinu? Er til önnur tegund sem er hollari og umhverfisvænni og kannski þar að auki ódýrari? 3. Hvað með skóna sem krakkarnir eru nýbúnir að fá og verða fljótlega of litlir, en nánast ónotaðir. Er skiptimarkaður ífélaginu, eða má senda þá til barna í nauð? Er þetta ekki umhverfismál sem snertir m.a. minna sorpmagn? 4. Erum við að nota óhóflega mikið vatn í sturtunni? Pað þarf orku til að koma vatni í sturturnar og því ekki sjálfgefið að láta renna og renna. Petta á líka skylt við sparnað. Þetta eru nokkur dæmi um það sem við getum unnið að í ungmennafélaginu okkar og tekið þar af leiðandi um leið þátt í að vinna að bættu og betra umhverfi. Er ekki tími til kominn að móta umhverfisstefnu fyrir öll ungmennafélög í landinu, ekki seinna en strax? Þetta kallast á íslensku að taka þátt í umhverfismálum. Er þitt félag eingöngu íþróttafélag eða ertu sannur ungmennafélagi með þátttöku í ræktun lýðs og lands? Björn B. Jónsson Tókuð þið eftir! "Að sinna umhverfismálum". Sumir svara því til að þeirra félag sé eingöngu íþróttafélag og eigi þar af leiðandi ekki að vera í umhverfismálunum". Þetta er mergur málsins og nákvæmlega það sem ég ætla að korna að nánar í þessari grein. allra í nútíma samfélagi að ganga ekki á auðæfi heimsins, sem í þessu tilfelli er umhverfi okkar. Heimilum, stofnunum, fyrirtækjum og einstaklingum er uppálagt að flokka allan úrgang á grundvelli raunhæfra möguleika á endurnýtingu hans. Draga skal úr mengun og mengunarhættu eins og kostur er. Hávaða- og loftmengun á að vera í lágmarki og svo mætti lengi telja. Það er því ekki bara nauðsynlegt að vinna að þessum málaflokki í "íþróttafélögunum", heldur er það skylda okkar. Hvernig má þetta vera hægt? Iþróttir eru stundaðar í íþróttahúsum og á vallarsvæðum sem eru staðsett í miðjum íbúðarhverfum og ekki mikið um opin svæði í kring sem er hægt að hlúa að t.d. með plöntun á trjám. Svarið er þetta: Það er hægt að gera mikið í umhverfismálum aðeins með réttri hugsun, meira að segja í þéttbýli: Ljósmynd: Jóhann Ingi Árnason

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.