Skinfaxi - 01.08.2000, Page 23
Mótið hófst á föstudegi með keppni í körfu,
frjálsum og knattspyrnu. Mótið var síðan sett um
kvöldið í blíðskaparveðri og var setningarathöfnin
mjög glæsileg þar sem keppendur gengu inn á
völlinn í skrúðgöngu undir fánum sinna félaga og
sambanda. Síðan var dans stiginn í tjaldi fram eftir
kvöldi. Keppni hófst síðan í öllum greinum á
laugardeginum og lauk um miðjan dag en þá hófst
alþjóðleg stangarstökkskeppni á Bíldudal þar sem
heimamaðurinn Vala Flosadóttir keppti við þrjár
erlendar stúlkur.
Það má með sanni segja að þetta hafi verið einn
af hápunktum mótsins því áhorfendafjöldinn var á
bilinu 3 - 4000 og íbúafjöldi Bíldudals tífaldaðist
þennan dag. Um kvöldið var síðan kvöldvaka og
tónleikar þar sem hljómsveitin „í svörtum fötum"
lék og náði hún fram ótrúlegri stemmningu í
hópnum. Deginum lauk síðan með veglegri brennu í
fjöruborðinu þar sem ungir sem aldnir léku sér að
því að fleyta kerlingar á spegilsléttum sjónum.
Sunnudagurinn var svo lokadagur mótsins og hófst
með keppni á öllum stöðum sem lauk um miðjan
dag. Mótinu var síðan slitið um sexleytið og voru þá
verðlaun afhend og fyrirmyndarbikarinn. Bikarinn
er aflientur því liði sem þykir hafa verið til sóma í
klæðaburði, hátterni og allri framkomu á mótinu.
Fyrirmyndarliðið á þessu landsmóti var UMSS og
voru þeir vel að því komnir því þeirra lið var í alla
staði til fyrirmyndar, bæði utan vallar sem innan.
Síðan var haldin heljarmikil grillveisla og kvöldinu
lauk með útidansleik þar sem allir skemmtu sér
frábærlega við undirleik hljómsveitarinnar. „í
svörtum fötum".
Það má því segja að þessi tilraun með það að
halda mótið um þessa helgi hafi gengið upp. Fjöldi
keppenda hefði mátt vera meiri en það var
ánægjulegt að sjá hve margir foreldrar komu með
börnum sínum og fjölskyldan átti ánægjulega helgi
saman. Einnig var það augljóst að allir, jafnt
mótshaldarar og gestir, voru staðráðnir í að allt
gengi upp því öll vandamál sem upp komu voru
leyst í samvinnu og sátt.
Mótshaldarar vilja þakka gestum fyrir komuna
og umgengni sem var til fyrirmyndar og
ungmennafélagshreyfingunni til sóma því rusl sem
tína þurfti af svæðinu eftir mótið komst í einn
innkaupapoka.
Unglingalandsmótsmyndir