Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2000, Síða 24

Skinfaxi - 01.08.2000, Síða 24
Anægður með árangurinn Margt af okkar fremsta frjálsíþróttafólki sýndi getu sína á ólympíuleikunum Sydney. Eins og gengur og gerist slógu sumir í gegn en aðrir náður kannski ekki að sýna sitt rétta andlit. Við hjá Skinfaxa fengum verkefnisstjóra Sydneyhóps-FRÍ, Véstein Hafsteinsson, til að gefa okkur hans mat á árangri frjálsíþróttafólksins. Hvernig metur þú árangur frjálsíþróttafólksins á Olympíuleikunum? „Ég held nú að yfir höfuð séu menn nokkuð sáttir við árangurinn. Við vorum með lítinn hóp og það mátti lítið útaf bera svo illa færi. Það má kannski segja að 50% hafi staðið sig vel en hin náðu ekki að sína sitt besta." En ef þú metur árangur hvers og eins? „Já, ef við skoðum fyrst Jón Arnar og Mörtu þá náðu þau ekki að klára og ekkert raunverulega hægt að segja við því. Þórey Edda stóð sig ekki nógu vel og vissulega voru það töluverð vonbrigði. Það vita allir að hún getur mun betur en það er bara stundum þannig að hlutirnir ganga ekki upp. Það má kannski segja að þetta hafi hreinlega ekki verið hennar dagur. Ef við lítum hins vegar á hina þrjá sem kepptu þá stóðu þau sig öll vel. Magnús skilaði sínu og svo þekkja auðvitað allir Islendingar árangur Guðrúnar og Völu. Ég hef nú ekki haft tíma til að skoða það en það kæmi mér ekki á óvart ef þessi árangur frjálsíþróttahópsins væri sá besti frá upphafi en ég þori nú ekki að fullyrða það." Vala kemur heim með brons og hefði með smá heppni geta nælt sér í gull? Já, það er auðvitað alltaf hægt að velta svoleiðis hlutum fyrir sér en ég held að allir hefðu verið sáttir fyrir mótið með bronsið. Það eina sem skyggir á stangarstökkið er árangur Þóreyjar en hún kemur bara sterkari inn á næsta mót." Vala Flosadóttir geröi sér lítið fyrir og nældi sár í bronsverðlaun í Sydney. Talandi um næsta mót hvaða íslenska frjáls- íþróttafólk sérð þú fyrir þér þar? „Það eru margir efnilegir en svona fljótt á litið held ég að þar verði Vala, Þórey, Magnús og Einar Karl Hjartarson, hástökkvari, í fararbroddi. Þessi þrjú fyrstu eru öll enn að bæta sig og korna reynslunni ríkari á næstu Olympíu- leika. Einar Karl missti naumlega af sæti í þetta skipti og kannski var það bara fyrir bestu. Hann hefur ekki mikla reynslu af stórmótum en hana getur hann fengið fram að næstu leikum. Einar Karl hefur alla burði til að vera góður hástökkvari og ef hann heldur rétt á spöðunum mun hann ná mjög langt. Svo það eru spenn- andi tímar framundan í frjálsum? „Ég held að árangurinn verði ekki síðri á næstu Olympíuleikum en hann var í ár."

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.