Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.08.2000, Page 26

Skinfaxi - 01.08.2000, Page 26
Reynslunni ríkari Stefán Kai'l skemmti sér konunglega í SvíþjóO. Eins og undanfarin 13 ár hafa ungmennaskipti átt sér stað á milli 4H-sam- takanna í Noregi og Svíþjóð og UMFÍ. Þetta samstarf gefur ungmennum á aldrinum 17-25 ára tækifæri til að kynnast landi, þjóð og tungumáli í við- komandi landi. Til íslands kom stúlka frá Noregi Ruth Austvoll. Hún dvaldi hér í tæpa þrjá mánuði hjá þremur fjölskyldum. Ruth var mjög ánægð með dvöl sína hér á landi. Tvö íslensk ungmenni fóru utan á vegum UMFÍ og birtist frásögn þeirra hér að neðan. %■ / m ' Hvað er gert ? Skipulagið er þannig að þú ferðast á milli fjölskyldna og tekur þátt í því sem hver fjölskylda er að gera en það gat verið afar mismunandi. Þegar næga vinnu var að hafa var henni sinnt framan af degi. Mikið var um allskonar landbúnaðar- störf en einnig fékk maður að kynnast ferðamannaþjónustunni, byggja og mála. Ef fjölskyldan bjó í borg var hægt að fara með einhverjum fjölskyldu- meðlimlim í vinnuna og aðstoða hann þar. Það var passað vel upp á að maður hefði alltaf eitthvað að gera. Eftir vinnuna var fundið upp á ýmsu til gamans. Ég fékk til að mynda að fara á ströndina, vatnaskíði, hestbak, í tívolí, teygjustökk, skoða söfn, fara á böll og margt margt fleira. Svo var einnig farið í einnar viku tjaldbúðir, þar sem maður hitti hina sem voru annars staðar á v e g u m IFYE í Sví- þjóð. Þessar tjaldbúðir líktust skátamótum en stemmningin var samt önnur. Vaknað var kl. 7 og þá hófst ákveðin dagskrá sem var mismunandi fyrir hvern dag. Hver hópur hafði sitt eigið þema, einhverjir voru með miðaldirnar og gengu urn spúandi eldi og aðrir höfðu tekið upp á því að kynna hinar ýmsu tegundir af smokkum, svo dærni séu nefnd. A kvöldin var grillað yfir opnum eldi og var aldrei farið að sofa fyrr en kl. 2 eftir miðnætti. Þrátt fyrir þétta dagskrá var nóg um frítíma þannig að maður gat farið í bæinn og þess háttar. Kostir og gallar Að ferðast sem IFYE er ekki bara ódýrt, heldur líka skemmtilegt og

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.