Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2000, Blaðsíða 30

Skinfaxi - 01.08.2000, Blaðsíða 30
lokaorð Helga Jónsson, stjórnarmaður UMFÍ Börnin okkar eru, að mínu mati, þeir mestu dýrgripir sem viö höfum möguleika á að eignast. Þegar börnin eru litil eiga flestir foreldrar sár stóra drauma og væntingar eru miklar gagnvart framtíð barnanna. Þegar börnin eldast og við öðlumst meiri reynslu sem foreldrar tekst okkur, flestum, nokkurn veginn að sníða draumana og væntingarnar að raunveruleikanum. • • 11 viljum við börnunum það besta en þyrftum kannski stundum að staldra við og íhuga hvort efnishyggjan er of ríkjandi í því umhverfi sem við erum að skapa börnunum okkar. Við erum uppi á þeim tímum þar sem skilaboðin eru umfram allt að okkur eigi að „líða vel". Vellíðanin felst ekki í því að eiga nýjasta tölvuleikinn eða merkjavöruna, heldur er okkur nauðsynlegt að búa yfir ákveðinni færni til að geta átt samskipti við aðra. Þá færni öðlumst við með því að vera innan um annað fólk og starfa með öðrum á sem fjölbreyttastan máta. Ungmennafélagshreyfingin leggur okkur foreldrum ómetanlegt lið hvað þetta varðar. Ut um landið, bæði í dreifbýli og þéttbýli, eru það ungmennafélögin sem standa fyrir félagsstarfi allra aldurshópa og oftar en ekki er það barna- og unglingastarfið sem skipar hvað stærstan sess. Elja og áhugi foreldranna í því starfi er víðast hvar aðdáunarverður. Foreldrar eru að verða meira og meira meðvitaðir um mikilvægi þess að styrkja félagsheildina/hópinn sem barnið starfar með og eru með markvisst starf í þá veru. Þátttaka í stórviðburðum eins og Unglingalandsmóti UMFI og Kultur og Ungdom gerir vissulega kröfur um mikla félagsfærni og samkennd þátttakenda. Sú skemmtilega þróun hefur orðið í félagsstarfi á síðustu árum að æ fleiri félög/stofnanir eru farin að bjóða upp á starfsemi fyrir börn undir skólaaldri. Auk kirkjuskólanna/sunnudagaskólanna sem löng hefð er fyrir á ég við íþróttaskóla ýmiss konar, mömmumorgna og fjölbreytta flóru námskeiða. Með þátttöku barna sinna eru foreldrar ekki einungis að stuðla að aukinni færni barnanna á einhverju ákveðnu sviði heldur einnig aukinni félagsfærni. Það að foreldrarnir taki þátt í félagsstarfinu með börnunum leggur grunn að sameiginlegu áhugamáli og styrkir fjölskylduböndin. Einnig myndast tengsl innan foreldrahópsins og þannig getum við haft möguleika á að styðja hvert annað í uppeldisstarfinu. Það að taka þátt í félagsstarfi er ákveðin fyrirmynd sem er eftirsóknarverð á tímum þar sem hætta er á einangrun einstaklingsins við skjámiðil sinn, því flestu er orðið hægt að sinna í gegnum skjámiðil. Þegar börnin stálpast skipta félagarnir sífellt meira máli og þá er mikilvægt að ég sem foreldri geti litið á þá sem „mín börn". Vinahópurinn venst því að foreldrahópurinn sem að honum stendur lætur sig hvert og eitt þeirra varða. Forvarnargildi íþrótta- og tómstundastarfs barna og unglinga varðandi vímuefni er ótvírætt. Forvörnin liggur ekki í þátttökunni sem slíkri heldur í þeirri umgjörð sem er um starfið. Þeim félagasamtökum sem hafa mótað sér stefnu í vímuvarnarmálum fer fjölgandi og er það af hinu góða. Stuðningur foreldra við félagsstarf barna og unglinga er eitt af grundvallaratriðum starfsins, sérstaklega þegar kemur að vímuvörnum. Hlutverk foreldra í vímuvörnum verður seint ofmetið. Samheldni foreldrahópsins, eftirfylgni, hvatning, áhugi og hrós, jafnt fyrir viðleitni sem árangur, getur skipt sköpum varðandi ástundun og áhuga unglinganna. Þegar börnin eldast og fara að nálgast unglingsárin virðumst við foreldrar oft verða hálffeimin við að láta í ljós langanir og áhuga okkar á að fylgja unglingunum okkar eftir í því sem þau eru að gera. Raunin er hins vegar sú að langflestir unglingar vilja hafa okkur meira með sér en þau láta uppi. Samverustundir fjölskyldunnar gegna lykilhlutverki í baráttunni gegn vímuefnum. Samvera fjölskyldunnar við leik og störf stuðlar að jákvæðum tengslum fjölskyldumeðlima, eflir samkenndina, styrkir sjálfsmyndina og kennir tillitssemi. Gerum því yfirskrift verkefnis sem Loftskipið, forvarnarverkefni á veguni UMFI og áætlunarinnar Island án eiturlyfja, stóð fyrir í sumar að okkar leiðarljósi: „Fjölskyldan saman - notum tímann vel". Ég vil þakka félagsmönnum Héraðssambandsins Hrafna- Flóka fyrir þá frábæru fjölskylduhátíð sem 4. Unglingalandsmót UMFÍ var. Sérstaklega ánægjulegt var að sjá hve margir foreldrar fylgdu börnum sínum á mótið. Fjölskylda mín skemmti sér mjög vel á mótinu þó enginn innan hennar væri á réttum aldri til að taka beinan þátt í íþróttaviðburðum mótsins. Það liggur nokkuð ljóst fyrir að börnin munu sækjast eftir að komast á 5. Unglingalands- mót UMFI sem HSH mun standa fyrir eftir 2 ár. Það er trú mín að þar ráði mestu hvað það var gaman á Tálknafirði og i Vesturbyggð. Ég sem foreldri er ánægð með að hafa tekið þátt í, ásamt öðru Ungmennafélagsfólki, fjölmennri íþrótta-, úti- og fjölskylduhátíð verslunarmannahelgina 2000 þar sem vímugjafar voru allsendis ónauðsynlegir í skemmtanahaldi ólíkra aldurshópa. Helga Jónsdóttir

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.