Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2004, Síða 2

Skinfaxi - 01.08.2004, Síða 2
Leiðtogaskólinn býður uppá kröftug námskeið fyrir alla sem vilja ná betri árangri í félagsstörfum. Námskeið sem boðið verður uppá í vetur: 1. Leiðtogaþjálfun Öflugt námskeið ætlað þeim sem áhuga hafa á að starfa í forystusveit hvort heldur sem er í fálagsstarfi eða atvinnulífinu. Þátttakendur fá þjálfun sem býr þá undir að takast á við þau fjölbreyttu verkefni sem forystu- maður ífélagi þarf að kunna skil á. Meðal annars verður farið í eftirfarandi:fundarstörf og fundarstjórnun, framkomu (ræðumennsku), leiðtogafræðslu, samskipti við fjölmiðla, þjálfun fyrir viðtöl í fjölmiðlum,greinaskrif í fjölmiðla og ýmsar æfingar sem stuðlað geta að leiðtogahæfni. Námskeiðiðer4dagar. 2. Fundarstörf og fundarstjórnun: Þátttakendur fá góða tilfinningu fyrir mikilvægi faglegrar fundarstjórnarjafnt stærri sem smærri funda og hvernig þeir geta sjálfir fengið sem mest út úr fundarsetu sem fundarmenn. Farið er yfir öll grundvallaratriði fundarskapa. Þátttak- endurfá þjálfun í réttum fundarsköpum og fundarstjórn. Tilgangurinn er að þjálfa þátttakendur í að taka virkan þátt í fundarstörfum og tryggja markvissan og góðan fund. Námskeiðið er 6 tímar. 3. Ræðumennska I Námskeiðið eflir hæfni einstaklingsins til að taka til máls og tjá sig fyrir framan hóp af fólki. Það byggist upp á æfingum í framkomu, framsögn og ræðusmíð. Farið er í margskonar form á ræðum, svo sem söluræðum og tækifærisræðum. Námskeiðið er 6 tímar. 4. Ræðumennska II Námskeiðið er ætlað þeim sem lokið hafa Ræðunám- skeiði I og/eða öðrum ræðunámskeiðum. Einnig er æskilegt að þátttakendur hafi einhverja reynslu afræðumennsku. Að efla þekkingu og þjálfun þátttakenda í móðurmálinu og framkomu á opinberum vettvangi. Námskeiðið er5tímar. 5. Að starfa í stjórn Námskeiðið er ætlað fólki sem starfar eða ætlar að starfa í stjórn félagasamtaka. Farið verður yfir hlutverk stjórnar- manna og mikilvægi nýrra hugsunarhátta í starfi félaga. Hvernig fáum við nýtt fólk til að starfa með okkur? Félagsstarf í nútímaþjóðfélagi. Fundarstjórn og þjálfun í framkomu. Námskeiðið er 5 tímar. 6. Foreldrastarf (2005) Á námskeiðinu verður farið í hvernig við fáum fleiri foreldra til að starfa í félaginu okkar.Ætlað öllum sem áhuga hafa á heilbrigðu félagsstarfi. Námskeiðið er3tímar. 7. Annað Auk þess verða í boði styttri námskeið sem verða auglýst sérstaklega. Allar upplýsingar og bókanir á námskeið í síma 568 2929. www.umfi.is LEIÐTOGA SKÓLINN EINN. TVBR OG ÞRlR 248.014

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.