Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2004, Blaðsíða 13

Skinfaxi - 01.08.2004, Blaðsíða 13
JÓNSI - í SVÖRTUM FÖTUM það sem ég er aö fara aS gera. Mér finnst mjög gott aö taka með mér nesti fyrir daginn, t.d. ávexti, jógúrt, eða lasagna frá kvöldinu áður. Þetta er líka bara ódýrt, og heimilismatur er þannig bæði ódýr og góður kostur. Jónsi segist í raun og veru eiga erfitt með að halda sér i réttri þyngd. Það sé vandamál sem hann þurfi að hugsa um á hverjum degi. Eitt sinn hafi hann misst sex kiló yfir eina helgi og eftir það hafi sérfræðingar ráðlagt honum að hugsa vel um mataræðið. „Ég borða til að lifa, en ég lifi ekki fyrir það að borða," segir Jónsi. „Satt að segja finnst mér ekki gott að borða jafn mikið og ég þarf en ég geri það af því að ég þarf á þessari orku að halda. Regluleg hreyfing mikilvæg Jónsi segir að allir þurfi að hugsa um heilsuna og þar sé í raun bara tvennt sem þurfi að hugsa um. Það er borða hollan og góðan mat og hreyfa sig reglulega. Ekkert flóknara en það. „Eg er í ræktinni hér í World Class í Laug- um þar sem ég er að lyfta eftir prógrammi frá Arnari Grant og eins reyni ég að teygja mikið. um með fjölskyldunni en annars sé hann nokk- uð spenntur fyrir hönnun af öllu tagi, annars eigi tónlistin hug hans allan. Offituvandamál á íslandi Hvað finnst Jónsa um offituvandamálið sem sífellt er að stækka í hinum vestræna heimi, meðal annars á Islandi? „Ja, það er ekkert bara offita sem er vanda- mál. Það er fyrst og fremst það að fólk hugsar ekkert út í mataræði og hreyfir sig of lítið. Feit- ara fólk í góðu formi er i miklu betri málum en grannt fólk sem hreyfir sig ekkert og borðar óhollan mat. En það er samt einhvern veginn eins og meðalvegurinn sé að hverfa. Annað- hvort er fólk í því að reikna út hvað það má borða mikið af þessu og hinu eða það sekkur sér í sukk. Eg finn mikið til með fólki sem á við þessi vandamál að stríða. Eg held að fólk sé að kaupa of mikið af tilbúnu fæði sem er reyndar ekkert skrítið, það eru allir að flýta sér, en það er svo miklu auðveldara að nálgast virkilega óhollan skyndibitamat heldur en holl- an. Það er líka alveg skiljanlegt að fólk gleymi og setja mér markmið og strax á öðrum eða þriðja degi vaknaði ég allt annar maður, alveg eldhress og að drepast úr strengjum," segir Jónsi og hlær. Á móti reykingum... „Eg reyki ekki. Mér finnst vond lykt af fólki sem reykir og ég reyki ekki vegna þess að ég veit að þá á ég eftir að lifa verra lífi. Svo veit ég að ég verð ógeðslega krumpinn í framan ef ég reyki og hárið á mér verður ógeðslegt og þá nennir enginn að horfa á mig skemmta, fyrir utan að ég get ekki sungið ef ég myndi reykja," segir Jónsi og grettir sig allan í fram- an á meðan hann talar um reykingar og hefur greinilega sterkar skoðanir á tóbaksnotkun. ...og áfengi líka „Afengi er mjög vandmeðfarið og viðsjárvert að umgangast áfengi og sjálfur er ég mjög hófsamur á notkun þess. Eg til dæmis missi alltaf röddina ef ég fæ mér í glas. Afengi á að umgangast með varúð og nota sem gleðigjafa sérstaklega í tengslum við matargerð og bragðskin í raunverulegum skilningi þess orðs. Ahrifunum af áfengi sækist ég ekki eftir og er ekki spenntur fyrir þeim." Einelti aumingjaskapur „Einelti er aumingjaskapur þeirra sem leggja aðra i einelti. Þeir sjá ekki fegurðina, húmorinn eða karakter þeirra sem þeir eru að leggja í einelti. Eg held að það sé ágæt lækning fyrir þá sem leggja aðra í einelti sé að hafa meiri húmor fyrir sjálfum sér. Eg hef sefið beggja megin borðsins og veit hvað þetta er ömurlegur leikur. Það skiptir miklu máli að missa aldrei trúna á eigið ágæti og láta ekki einelti koma í veg fyrir að maður geti verið hress." Popparinn hefur ekki veriS hræddur við aS rífa sig úr aS ofan á sviSinu, enda í góSu formi. lifi ekki til að borða... Síðan er ég í þriggja tíma brennslu þegar ég er að skemmta á böllum og 2 tíma brennslu þegar ég er að leika i söngleikjum. Og það getur verið frá 2 - 8 sinnum í viku sem ég er í svona brennslu þannig að það eitt og sér er mjög mikil hreyfing. Fyrir rúmu ári síðan var ég 11 kg léttari en ég er í dag. Þá vorum við að setja upp Grease og ég var ansi teygður og tættur. Það liggur i augum uppi að ég þarf að eyða miklum tima og orku i að byggja mig upp en þetta sýndi mér lika að það þarf ekki nema smá vinnu og hugarfarsbreytingu og þá sér maður strax ótrúlegan mun. Hvað varðar önnur áhugamál en tónlist þá segir Jónsi að honum líði langbest í rólegheit- kjarna málsins, borða nóg af ávexfum og grænmeti, hollan mat og hreyfa sig. Þetta er eitthvað sem vill gleymast enda kostar það skipulagningu og smá tíma. En það verða allir að hreyfa sig og borða sæmilega holla fæðu, annars lenda menn bara í vandræðum. Svo eru margir sem halda að það sé leiðinlegt að hreyfa sig, og ég var einn af þeim, en það er það bara alls ekki. Þetta eru hlutir sem fara að gefa eitthvað um leið og maður byrjar. Eg hef til dæmis verið „hamborgara og franskar strákur" daginn út og daginn inn og veit hver munurinn er. Þá gekk mér verr í skóla, var slappur og sljór og fattaði ekki gildi góðrar hreyfingar. Það var síðan fyrir fæpum tveimur árum að ég fór að æfa með skipulögðum hætti Söngleikur, plata og kirtlataka „Það sem er framundan hjá mér er að frum- sýna söngleikinn „Með næstum allt á hreinu", leggja lokahönd á Svörtufataplötu sem kemur út í nóvember, fara í stutta ferð með konunni minni til Danmerkur, spila lög og árita þegar platan kemur út, halda gleðileg jól með fjöl- skyldunni, fara í kirtlatöku i janúar, koma í Laugar og æfa 5 sinnum í viku og eyða tíma með Svarta liðinu. Svo vona ég bara að fólk líti á björtu hliðarnar i lífinu, það er bara svo miklu skemmfilegra. Svo mæli ég með þvi að fólk noti tannþráð og fari i háskóla," sagði Jón Jósep að lokum, fullkomlega klár í átök dags- ins. 13 SKINFAXI - timarit um menningu

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.