Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2004, Blaðsíða 14

Skinfaxi - 01.08.2004, Blaðsíða 14
ÞÓREY EDDA Þórey Edda Elísdóttir stangarstökkv- ari, vann sig inn i hug og hjörtu islendinga þegar hún nóði fróbærum órangri ó Olympiuleikunum i Aþenu þar sem hún hafnaði i 5. sæti i stang- arstökkskeppninni. Sumir segja að hún hafi bjargað Olympiuleikunum fyrir landann þegar stoltir íslending- ar sótu spenntir og fylgdust með. Þórey Edda er búin að vera i hópi okkar allra fremstu íþróttamanna um nokkurra óra skeið. Árangur hennar ó Olympiuleikunum staðfesti að hún er i hópi bestu stangarstökk- vara i heimi. Þórey Edda byrjaði ung að æfa iþróttir og mó segja að íþrót- tir hafi spilað stórt hlutverk i hennar lifi allar götur siðan. Hvernig var á Olympíuleikunum? - Alveg æðislegt, þetta er upplifun sem engan veginn er hægt að lýsa. Hvernig fannst þér keppnin í stöng- inni þróast, varstu spennt á meban keppni stóð eða fyrir keppnina, ánægb meb árangurinn? - Keppnin þróaðist í raun ó þann hótt sem ég bjóst við. Að sjólfsögðu var ég spennt bæði fyrir og í keppnini sjólfri. Að keppa í úrslitum Besti árangur á ferlinum á Ólympíuleikum er tækifæri sem gefst ekki oft, jafnvel aldrei aftur. Að þessu sinni átti ég svar við spennunni og gat með góðu sjálfstrausti farið á mínar stærstu stangir. A svona stórmóti streymir adrenalínið út í líkamann og gefur manni auka kraft og þar með nær maður meiri hraða og fær meira út úr stöngunum. Eg er mjög ánægð með árangurinn og vann marga persónulega sigra. Þórey Edda er með heimasiðu, www.thorey.net, þar sem hún er mjög dugleg að blogga. Strax að lokinni stangarstökkskeppninni skrif- aði hún á heimasíðuna: „Ég var ótrúlega „róleg" allan daginn. Alla- vega í rólegri kantinum. Upphitunin gekk líka vel og svo fór ég 4,20 í fyrstu tilraun. Ég lenti svo í smá vandræðum á 4,40 en stangirnar urðu svo mjúkar en það reddadist í þriðju tilraun. I 4,55 fór ég á stöng sem ég hef aldrei ráðið við áður, en hún var að bogna ansi vel. Einnig var gripið það hæsta eða í 4,40. Ég fór yfir í annarri tilraun og tryggði mér 5. sætið. Ég tók svo tvö stökk á 4,65 en í því fyrra ætlaði ég að vinna svo vel aftur á bak og upp í loftið að ég gleymdi að fara inn í hana fyrst og lenti því í stokknum. I þriðju tilraun ákvað ég að reyna við 4,70 sem hefði gefið mér þriðja sætið. Það tókst ekki en ég var samt mjög ánægð með mína 4,55 og 5. sætiil!!! Besti árangur Þóreyjar Eddu á ferlinum var staðreynd og mikil bæting frá Ólympíuleikun- um í Sydney þar sem hún stökk 4 metra og endaði í 22. sæti. Þórey segir að hún hafi fengið mikla reynslu á stórmótum í gegnum ár- in og það hafi hjálpað henni mikið á Olympíu- leikunum, sérstaklega í 3. tilraununum, þegar allt var undir. „Einnig að vita af þessum stuðningi að heiman, hann var hreint ótrílegur. Ég er búin að fá hátt í 150 email í gegnum þessa síðu og þið vitið ekki hversu mikla þýðingu það hefur fyrir mig. Ég skulda ykkur öllum stórf TAKK!!!! Ég ætla svo að setjast niður og skoða þau betur en nú er klukkan orðin 03:30 um nótt (kom af vellinum fyrir 2 tímum og fór beint i mat og svo í tölvuna). Kannski ég reyni að leggjast á koddann minn og sofna með bros á vor.)" (Skrifað að kvöldi keppnidags í úrslitum í stönginni.) Hvernig fannst þér Aþena? - Aþena finnst mér vera mjög skemmtileg borg. Það var mjög gaman að taka þátt í Ólympíuleikum í þeirri borg þar sem þeir voru fyrst haldnir. Borgin á sér langa sögu á íþrótta- sviðinu og maður upplifði söguna og menn- inguna mjög sterkt. Ég gekk að Akrapolis en þaðan er stórkostlegt útsýni yfir borgina. Mað- ur sér gamla íþróttaleikvanga og aðrar mjög fornar minjar. Veðrið var að sjálfsögðu mjög gott en hitinn var ekkert að pirra mig. Mér líður svo ótrúlega vel í hita. Annars var ég ekki mikið úti við nema á keppninni sjálfri og hún fór fram um kvöld þegar hitastigið var fullkom- ið. Herbergin voru loftkæld svo mér varð sjal- dan of heitt. Grikkir eru eflaust mjög fínt fólk en ég kynntisf þó ekki mörgum. Ég varð vör við örlítið skipulagsleysi en Grikkirnir virtust ekki sjá ástæðu yfir því að stressa sig á einhverjum smáhlutum. Mér fannst leikarnir þó fara mjög vel fram og heppnast vel í alla staði. Hvab ertu búin ab vera lengi í stönginni? Ég byrjaði að æfa stöngina haustið '96 en þá um vorið hafði ég endað minn 10 ára fim- leikaferil. Fyrsta árið mitt í stönginni tók ég í UMFÍ - Þátttaka er lífsstíll 14

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.