Skinfaxi - 01.08.2004, Blaðsíða 6
BIRKIR KRISTINSSON
Birkir Kristinsson markvör&ur ÍBV
og landsliðsmarkvörður til margra
ára náði þeim merka áfanga í
sumar að leika sinn 300. leik í
efstu deild. Arangurinn var enn
merkilegri því Birkir er búinn að
halda markinu hreinu í 103 leikj-
um. Birkir sem er uppalinn með
yngri flokkum ÍBV lék sinn fyrsta
leik í meistaraflokki með Einherja
á Vopnafirði 1983 og var fljótlega
talinn í hópi bestu markvarða
landsins og hefur verið það í 20 ár.
Birkir starfar sem ráðgjafi hjá
Islandsbanka, en slagorð bankans
er einmitt með allt á hreinu. Það er
því eðlilegt að við byrjum á þvi að
spyrja Birki hvort hann sé með allt
á hreinu?
„Já ég er með allt á hreinu í bankanum og
fjármálunum, og í boltanum er ég oftast meS
allt á hreinu þó svo að það hafi komið fyrir að
eitt og eitt skot hafi lekið inn."
Færðu borgað hjá Islandsbanka fyrir að vera
með allt á hreinu?
„Eg fæ borgað frá Islandsbanka fyrir að halda
hreinu hjá kúnnanum."
Er Ragga búin að skora hjá þér?
„Ég hef reyndar aldrei staðið í markinu á móti
henni en ef það myndi gerast myndi ég örug-
glega kikna í hnjánum," segir Birkir og brosir.
Birkir Kristinsson byrjaði ungur að æfa íþróttir
og æfði meðal annars fótbolta, handbolta og
sund. Atján ára sneri hann sér alfarið að fót-
bolta og er búinn að leika með meistaraflokki
síðan 1983. Hvað finnst honum hafa breyst í
boltanum.
„Tímabilið er alltaf að lengjast. Áður fyrr byrj-
uðu menn i janúar - febrúar en nú eru þetta að
verða 10-11 mánuðir sem fara í tímabilið.
Þetta er ansi langt tímabil miðað við að við
erum áhugamenn og auðvitað vildi maður
hafa keppnistímabilið lengra og undirbúnings-
tímabilið styttra en aðstæður hafa ekki leyft
það."
Flug eða Herjólfur
Eyjamenn eru sennilega það lið á íslandi sem
þarf að ferðast mest í íslenskum fótbolta.
Hvernig er þessum ferðum háttum hjá IBV?
„Yfirleitt fljúgum við í leiki og þá beint til
Reykjavíkur, en einnig kemur það fyrir að við
fljúgum á Bakka og þurfum þá að keyra það-
an. Það kemur líka fyrir að það sé ófært að
flúgja og þá þurfum við að taka Herjólf,
þannig að það kemur fyrir að við erum að
eyða heilum sólarhring í einn leik."
Me& allt
Vilji og meófæddir hæfileikar
Birkir er þekktur fyrir að leggja hart að sér við
æfingar og mæta manna best á æfingar.
Hvað telur hann að íþróttamaður þurfi að hafa
til að bera til að ná í fremstu röð?
„Hann þarf að hafa einbeittan vilja til að vera
i fremstu röð. Vera tilbúinn að að leggja mikið
á sig og fórna ýmsu til að ná árangri. Oft hafa
íþróttamenn líka ákveðna meðfædda hæfileika
en það er þó ekki alltaf trygging fyrir því að
ná langt. Ég hef til dæmis alltaf þurft að
leggja hart að mér og haft mikið fyrir því að
reyna að ná árangri. Það hefur hjálpað mér
mikið að vera í líkamlegu góðu formi en til
þess hefur maður þurft að leggja hart að sér
við æfingar," segir Birkir. En telur hann að allt
streðið sem hann hefur lagt á sig hafi verið
þess virði? „Engin spurning. Iþróttir hafa verið
hluti af mínu lífi og gefið mér mikið. Bæði þessi
tengsl hér á landi og erlendis og allur félags-
skapurinn sem maður hefur notið ásamt öllu
því góða fólki sem maður hefur kynnst í gegn-
um bolfann. Þá finnst mér að þátttaka í íþrótt-
um komi fólki til góða í vinnu sem og einnig í
fjölskyldustarfi. Maður lærir að skipuleggja sig
vel og það byggist upp metnaður til að ná
árangri jafnt í starfi sem íþróttum. Ég hef fund-
ið það að íþróttamenn sem hafa lagt mikið á
sig við þjálfun, gera það einnig í vinnu og þeir
hafa metnað fyrir hönd síns fyrirtækis."
á hreinu
Íþróttir góóur kostur
Birkir segir að hvað varði börn og unglinga þá
séu íþróttir góður kostur. „Það er svo margt
sem maður lærir í gegnum íþróttirnar eins og
aga og skipulagningu og heilbrigt líferni. Ég
valdi íþróttir frekar en að vera á göturölti og í
partíum. Þegar maður veit af krökkum í íþrótt-
um þá líður manni vel því þá eru minni líkur að
þau lendi í einhverju rugli og eins er sannað
að þau standa sig betur í námi, auk þess sem
þau eignast góða félaga í gegnum íþróttirnar."
1000 leikir
Eftir 22 tímabil í meistarflokki, rúmlega 300
leiki í efstu deild og sennilega hátt í 1000 leiki
ef allt er talið spyrjum við Birki hvað það er
sem hafi knúið hann áfram allan þennan tíma?
„Ákveðinn metnaður til að ná árangri. Maður
vill oftast gera betur þannig að þetta er ein-
hver fullkomnunarárátta. Þegar maður hefur
kynnst því að vinna titla þá vill maður vinna
fleiri og þegar maður er í þokkalegu líkamlegu
formi þá vill maður ekki hætta. Ef ég hætti í
fótbolta þá sný ég mér örugglega að einhverri
annari íþrótt, hvort sem það verður golf eða
glíma því ekki get ég hugsað mér að leggjast
bara upp í sófa á besta aldri. Það hafa komið
tímar þegar manni finnst hlutirnir engan veg-
inn ganga og þá hefur það hvarflað að manni
að hætta en þá hefur maður aldrei talið það
UMFÍ - Þátttaka er lífsstíll
6