Skinfaxi - 01.08.2004, Síða 19
BJOSSI BOLLA
Bjössi (ekki lengur) bolla
Bjössi Bolla var landsþekktur prakkari fyr-
ir mörgum árum. Bjössi Bolla var fasta-
gestur í Stundinni okkar, fór í ferðalag
með Sumargleðinni og skemmti og söng.
Vegna þess að vinur hans Magnús Olafs-
son leikari söng lagið um Prins Póló með
Sumargleðinni, þá borðaði B/össi mikið
Prins Póló og sælgæti, en fyrir nokkrum
árum fór Bjössi í sveit með mömmu sinni
og lærði þar að borða hollan og góðan
mat. Skinfaxi rakst á Bjössa og lagði fyrir
hann nokkrar spurningar.
Hvafc er a2> frétta af
Bjössa bollu í dag?
„Allt mjög gott, ég er kominn aftur á höfuð-
borgarsvæðiS."
Er Bjössi búinn að vera í fríi?
„Já, ég var í sveit meS mömmu, hún var ráSs-
kona í Húnavatnssýslunni."
Er Bjössi að fara gefa út nýjan geisladisk?
Hvað verður á honum,
„Ég er aS fara aS gefa út myndbandsspólu og
DVD meS því besta sem ég gerSi fyrir Stund-
ina okkar fyrir nokkrum árum. Þar sem ég m.a.
at kappi viS sterkasta mann í heimi Jón Pál
Sigmarsson. Hann dó því miSur ungur og er
þetta gert í minningu hans."
Bjössi var á sínum tíma nokkuð þéttur á velli,
er er i dag orðinn hár og spengilegur..., hvern-
ig stendur á því?
„Ég hætti aS borSa óhollan mat og mamma
gaf mér mun hollari mat aS borSa svo aS ég
myndi grennast. Og mig langar aS hjálpa
þeim börnum sem eru of feit og eiga erfitt aS
fóta sig í lífinu. ÞaS er hægt aS gera svo
margt."
Er Bjössi hættur í Prins Póloinu og namminu?
„Já, nú er bara einn nammidagur í viku og þá
reyni ég aS borSa hollustunammi."
Er Bjössi eitthvað farinn að æfa, ganga, synda
eða í ræktina...?
„Jahá, ég er sko farinn aS hreyfa mig meira
og þess vegna hefur mér gengiS svona vel.
Mig langar aS skrifa matseSil og æfingar fyrir
börn sem þurfa á hjálp aS halda."
Var Bjössi eitthvað i íþróttum þegar hann var
yngri?
„Já, ég var í fótbolta og af því aS ég var svo
feitur þá var ég alltaf settur í markiS, eSa var
bara varamaSur. "
Nú er Bjössi mjög hress og skemmtilegur, en
var samt kannski svolítill prakkari, hvernig
finnst Bjössa að krakkar eigi að koma fram,
t.d. við hvort annað, við kennara eða for-
eldra...?
„Já, ég er ennþá mjög hress og skemmtilegur
og farinn aS búa til nýja skemmtidagskrá fyrir
börn. Krakkar eiga aS koma fram viS alla eins
og þau vilja láta koma fram viS sig. Bera virS-
ingu fyrir kennurum og foreldrun sínum. ÞaS er
allt í lagi aS skemmta hvort öSru, hlæja og
grínast, en þaS á allt aS vera í góSu. MaSur á
ekki leggja aSra í einelti, ekki gera grín af
þeim sem eru of feitir, heldur reyna aS hjálpa
þeim. Aldrei aS reykja, drekka áfengi og forS-
ast alla óhollustu í hvívetna. Ef maSur gerir
þetta verSur maSur miklu betri persóna."
„Ég vil aS lokum skila kveSju til allra barna á
Islandi og hlakka til aS hitta þau."
Með kærri vinar kveðju
BJÖSSI BOLLA
vinur barnanna.
Góður árangur hjá 10 ára hnokka
Hilmar Daníelsson 10 ára hnokki úr
UMSE stóS sig mjög vel á aldursflokkamóti
UMSE f sumar. Hilmar keppti í 60 metra
hlaupi, boltakasti og langstökki.
Árangur hans varS
sem hér segir:
60 m hlaup: 9,30 sek.
Boltakast: 32,04 m.
Langstökk: 4,21 m.
Árangurinn í langstökki er ótrúlega góSur
hjá 10 ára strák, því 12 ára strákar þykja
nokkuS góSir ef þeir ná aS stökkva þessa
lengd. Einnig er tfmi hans í 60 m hlaupi
frábær. Þá var Hilmar í sigursveit í 4 x 100
m boShlaupi og hafSi því 4 gull eftir mótiS.
Þjálfari Hilmars er Omar Freyr Sævarsson
og aS sögn hans getur Hilmar náS mjög
langt ef hann heldur áfram aS æfa og
stunda íþróttir. (Frétt frá UMSE)
19
SKINFAXI - tímarit um menningu