Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.08.2004, Side 24

Skinfaxi - 01.08.2004, Side 24
MEGRUN Viktin sýnir núna 128 kg eftir 25 ára baráttu við auka- kílóin sem hófst þegar viktin sagði fyrst 99 kg. Viktin fór hæst í 139 kg fyrir tæpu ári. Eg er löngu búinn ab gleyma afhverju mér fannst ég vera of þungur þegar ég var 99 kg, en ég væri aftur á móti hæstánægbur með þá tölu í dag. mig fyrir almenn sæti í flugvélum sem er mjög bagalegt þar sem ég get ekki með góðu móti sett niður borðið fyrir matar- bakkann. Það hrjáir mig aftur á móti minnst að vera of þungur miðað við hæð. A hverjum degi má sjá í fjölmiðlum auglýs- ingar og umfjallanir um allskyns töfra- lausnir sem eiga að „éta" aukakílóin af okkur og færa okkur öll fyrirhafnalítið í staðlaða ímynd fegurðar sem er miðuð við hæð einstaklingsins. Að vísu útheimta þess- ar töfralausnir yfirleitt talsverða megrun á efnahagi þáttakendans sem því miður virð- ist oft verða eina varanlega þyngdartapið sem viðkomandi verður fyrir. Hvað er til ráða? Eg held að við þurfum að viðurkenna að það séu engar töfralausnir til og að fegurð einstaklings er ekki metin útfrá þyngd og hæð. Er ég of þungur (feitur)? Hreyfi ég Hættum áb fara í megrun! Þess í stað er kannski ráð að temja okkur hófsaman lífstíll sem hentar okkar persónu- leika og smekk. Ekki breyta matarvenjum eða matarsmekk en tökum samt á ofneyslu eða einneyslu ef hún er til staðar. Fjöl- breytni í mataræði er það mikilvægasta. Ekki fjölga matartímum, borðum samkvæmt okkar eigin hefð. Fylgjumst með viktinni t.d. vikulega og byrjum á því að stilla mat- arvenjur þannig að við hættum að þyngj- ast. Það markmið er í sjálfu sér nóg því það leiðir af sér þyngdartap þegar fram í sækir ef vilji er til þess. Ef við erum og höf- um verið kyrrsetufólk borgar sig ekki að rjúka í daglegar skipulagðar og erfiðar líkamsæfingar. Kaup á margra mánaða korti í líkamræktarstöð hefur álíka áhrif á lífstíl okkar eins og kaup á fótanuddtæki. Hvorugt verður notað. Rólegar gönguferðir eða hófsamar sundlaugaheimsóknir eru lik- Er megrun fitandi? Af og til á þessum 25 árum hef ég farið i skipulagða megrun. Yfirleitt hefur það þýtt að gerð er bylting á mataræðinu og hreyf- ing aukin til muna. Þetta stendur yfir í 2-6 mánuði í senn. Þegar svo megruninni lýkur tekur við tímabil sem flestir kannast við, það er að lífið fellur í sinn fyrri farveg og ári síðar sýnir viktin 3-5 kg hærri tölu en var í upphafi megrunarinnar. Eftir nokkrar svona æfingar verður kappið að ná þeirri þyngdartölu sem var upphafið af öllu klúðrinu. Ég er heilsuhraustur miðaldra karlmaður sem er of þungur miðað við hæð sam- kvæmt alþjóðlegum staðli. Ég er líka of stór ef miðað er við meðal- stærðir fatnaðar í helstu tísku- verslunum. Þá er ég líka of þungur fyrir illa byggð húsgögn t.d. plaststóla og tjaldstóla samkvæmt sárri eigin reynslu. Svo er ég of stór um Góðar stundir. Birgir Gunnlaugsson mig of lítið? Þessum spurningum verður ekki svarað af vinum og vandamönnum þó svo að skoðanir þeirra geti verið vel meint- ar. Þessu þarf hver og einn að svara fyrir sjálfan sig. Það sem skiptir mestu máli fyrir okkur er svarið við spurningunni: Líður mér vel? Ef okkur líður ekki vel og við skynjum að vanlíðan okkar er tilkomin vegna of mikillar líkamsþyngdar þá er ástæða til aðgerða. Breyttar matarvenjur og aukin hreyfing deyfa yfirleitt ekki sársaukafullar tilfinningar. legri til að höfða til okkar og verða hluti af okkar daglega lífi. Oll hreyfing hjálpar til við styrkja líkamann og eykur brennslu. Þessum ráðum mínum hef ég fylgt í 8 mán- uði og viti menn 11 kíló eru farin og ég held loksins varanlega. Ég neita mér ekki um neitt og nýt þess að borða eftir eigin smekk. Ég hreyfi mig þegar ég vil og þeg- ar mér hentar. Það græðir enginn á svona „eigin" heilsu- bót nema við sjálf. Það kostar ekkert að fara í gönguferðir og yfirleitt er ódýrara að borða minna. Þess vegna verður tíminn alltaf ókeypis" eins og hjá mörgum sérfræðinginum, en það sem betra er allir tímarnir á eftir eru það líka. UMFÍ - Þátttaka er lífsstíll 24

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.